Endurbætur fyrir 130 milljónir
Aukin lýsing yfir akbrautum á svokölluðu aðlögunarsvæði innan gangamunna í Hvalfjarðargöngum, fjölgun neyðarsíma og slökkvitækja, aukin neyðarlýsing og fleira er á framkvæmdaáætlun Spalar í Hvalfjarðargöngum í ár. Kostnaður er áætlaður alls um 130 milljónir króna, auk virðisaukaskatts. Að þessu var unnið þær 11 nætur sem lokað var fyrir umferð undanfarnar þrjár vikur og gert er ráð fyrir að ljúka verkinu í haust.
Þetta kemur fram á vef Spalar sem á og rekur Hvalfjarðargöng. Endurbæturnar eru liður í að gera göngin að enn öruggara umferðarmannvirki sem standast mun kröfur reglugerðar nr. 992/2007 með síðari breytingum. Reglugerðin á sér rætur í ESB-tilskipun um öryggi í veggöngum frá 2004.
Spölur fékk verkfræðistofurnar Mannvit í Reykjavík og Raftákn á Akureyri til að hanna breytingar á öryggisbúnaði í göngunum til að uppfylla skilyrði reglugerðarinnar og undirbúa í framhaldinu útboð vegna kaupa á efni og búnaði annars vegar og vegna vinnu hins vegar.
Samið var við 9 fyrirtæki um kaup á efni og búnaði fyrir um 70 milljónir króna og við Rafmiðlun í Kópavogi um vinnuþáttinn fyrir um 42 milljónir króna. Þegar allt er talið með munu framkvæmdirnar í ár kosta um 130 milljónir króna + vsk.
Á heimasíðu Spalar er fjallað um helstu verkþætti en þeir eru:
- Aðlögunarsvæði vegna lýsingar í göngunum voru lengd á árinu 2010 með reglugerðarbreytingu úr 270 metrum í 430 metra beggja vegna. Þetta kallaði á fjölgun ljóskastara yfir akbrautum til að auka þar birtu á þessum svæðum.
- Neyðarsímum fjölgar þannig að á milli þeirra verði 125 metrar í stað 500 metra nú.
- Slökkvitækjum fjölgar þannig að á milli þeirra verði 125 metrar í stað 250 metra nú. Hér er Spölur reyndar að gera mun betur en reglugerðin kveður á um því samkvæmt henni er fullnægjandi bil milli slökkvitækja í göngum í notkun 250 metrar.
- Ljósaskilti verða sett upp til að vísa á neyðarstöðvar og útskot.
- Neyðarljósum fjölgar, þ.e. ljósum yfir akbrautum sem kvikna sjálfkrafa ef rafmagn fer af göngunum.
- Flóttaljós verða sett upp með rúmlega 60 metra millibili. Þau vísa á hvorn munna og lýsa þrátt fyrir að rafmagn fari af göngunum.
- Lagðir verða ljósleiðarar og brunaþolnir strengir vegna stjórnstöðva lýsingar og vegna annars búnaðar í göngunum.
Innlent »
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Ég reyni að lifa lífinu til fulls
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 5. janúar 2011, Innlent Lýsing fullnægir stöðlum
- Föstudagur, 10. desember 2010, Innlent 220 milljónir í umferðaröryggi
- Þriðjudagur, 1. júní 2010, Innlent Tap hjá Speli fyrri hluta árs
- Fimmtudagur, 8. mars 2012, Innlent Slökkviliðið fær rafbíl
- Mánudagur, 9. janúar 2012, Innlent Kröfur ESB kosta Spöl 250 milljónir kr.
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































