Lóð fjarlægð úr fangelsum
Fangelsismálayfirvöld hafa ákveðið að fjarlægja öll laus lóð úr fangelsum landsins í öryggisskyni. Þetta staðfestir Páll Winkel fangelsismálastjóri í samtali við mbl.is. Hann segir að þetta verði gert á næstu dögum.
Páll segir að aðgengi að öðrum líkamsræktartækjum verði tryggð, s.s. að hlaupabrettum og æfingastöðvum.
Páll segir að þetta sé gert vegna þess að hluti fanga lyfti mikið og sumir hverjir hafi bætt á sig miklum vöðvamassa á meðan afplánun stendur. Sumir séu jafnvel að taka um 200 kíló bekkpressu og 300 kíló í hnébeygju.
Dæmi séu um að fangar hafi nýtt sér styrk sinn til handrukkana að lokinni afplánun, en Páll bendir á að í ákveðnum tilvikum sé um að ræða einstaklinga sem hafi ítrekað hlotið dóma fyrir ofbeldisverk. Þetta sé því vandamál sem fangelsismálayfirvöld hafi orðið að bregðast við.
Þá segir Páll að aðgengi að þungum lóðum hafi ýtt undir notkun stera. „Við höfum að undanförnu tekið talsvert magn af sterum og hjá nokkrum föngum hefur mælst steranotkun. Það er auðvitað eitthvað sem við erum ekki sátt við.“
Tilkynnt var um þetta í dag og hvetur Páll fanga til þess að nýta sér önnur líkamsræktartæki og aðra líkamsrækt.
„Þetta er alveg í takt við það sem fangelsismálayfirvöld á Norðurlöndum hafa gert. Þau hafa dregið verulega úr lóðum og lagt áherslu á annars konar þrek,“ segir Páll í samtali við mbl.is.
Innlent »
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Ég reyni að lifa lífinu til fulls
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. mars 2012, Innlent Safna nýjum félögum í fangelsinu
- Laugardagur, 2. október 2010, Innlent Verða lóð bönnuð í fangelsum?
- Mánudagur, 5. desember 2011, Innlent Fagnar fé til Litla-Hrauns
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Nýjar leiðir í fangelsismálum
- Sunnudagur, 15. ágúst 2010, Innlent Fangar með þunga dóma fylla fangelsin
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































