Spara lýsingu í sumar

Það dimmir eitthvað yfir Borgarnesi á nóttunni.
Það dimmir eitthvað yfir Borgarnesi á nóttunni. mbl.is/Sigurður Bogi

Slökkt verður á götulýsingu í Borgarnesi og öðrum þéttbýlisstöðum Borgarbyggðar næstkomandi mánudag. Er þetta gert til að spara í rekstri sveitarfélagsins.

Gert er ráð fyrir því að slökkt verði á götuljósunum í fimmtán vikur yfir bjartasta tímann, eins og tvö undanfarin sumur.  Undantekning er þjóðvegurinn gegnum Borgarnes en þar munu ljós áfram loga eins og verið hefur. Kemur þetta fram á vef Borgarbyggðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert