Sveitarfélög sameinast um velferðarþjónustu

Flúðir
Flúðir www.mats.is

Samstarfssamningur um sameiginlega félagsþjónustu í Hveragerði, Ölfusi, Grímsnes- og Grafningshreppi, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi var undirritaður af fulltrúum sveitarfélaganna á Flúðum í gær. 

Einnig var undirritað erindisbréf fyrir sameiginlega velferðarnefnd þessara sveitarfélaga.  Með þessari undirritun er sameiginleg yfirstjórn velferðarmála þessara sveitarfélaga  staðreynd. 

Fram kemur í tilkynningu, að tilgangur samstarfsins sé að efla samstarf milli sveitarfélaganna á svæðinu á sviði félagsþjónustu með það að markmiði að minnka faglega einangrun starfsmanna auk þess sem skapað verði teymi starfsmanna sem vinni að því að efla og bæta þjónustu við íbúa í þessum sveitarfélögum.
 
Nýtt fyrirkomulag tekur gildi þann 1. ágúst næstkomandi.  Þá mun sameiginleg velferðarnefnd og sameiginlegur félagsmálastjóri taka til starfa en starfssvæðin verða áfram þrjú, Ölfus, Hveragerði og uppsveitir Árnessýslu og Flóahrepps. Á hverju svæði verða félagsráðgjafar að störfum en nýr félagsmálastjóri mun hafa yfirumsjón með starfinu á svæðunum. Núverandi félagsmálastjórum hefur verið sagt upp störfum.
 
Sameiginleg velferðarnefnd þessara sveitarfélaga mun verða skipuð fljótlega, auk þess sem ný staða félagsmálastjóra í sameiginlegri félagsþjónustu verður auglýst laus til umsóknar á næstu dögum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert