Ný áætlun hefur áhrif á bókanir

Herjólfur siglir nú aftur í Landeyjahöfn. stækka

Herjólfur siglir nú aftur í Landeyjahöfn. Rax / Ragnar Axelsson

Þeir sem pantað höfðu með Herjólfi frá Þorlákshöfn í síðdegisferð í dag, t.d. með bíl, þurftu að víkja fyrir þeim sem áttu pantað með skipinu frá Landeyjahöfn. Herjólfur lagðist upp að bryggju í Landeyjahöfn nú síðdegis. Þangað hafði hann ekki komið síðan 12. janúar.

Mbl.is frétti af manni sem átti pantað far fyrir sig og bíl frá Þorlákshöfn í seinni ferðinni í dag. Þegar ákveðið var að sigla í Landeyjahöfn kom í ljós að pöntunin gilti ekki lengur. Þeir áttu forgang sem pantað höfðu far fyrir bíl frá Landeyjahöfn.

Guðmundur Petersen, rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eimskip, sagði þetta vel geta staðist. Hann sagði að mikill ruglingur hafi orðið á áætlun skipsins vegna lokunar Landeyjahafnar. Þegar opnað var fyrir bókanir þangað var gert ráð fyrir fjórum ferðum í Landeyjahöfn á dag.

Þeir sem koma nú frá Vestmannaeyjum í Landeyjahöfn en eiga bíl í Þorlákshöfn verða fluttir þangað á kostnað Eimskips, að sögn Guðmundar. Þeir sem áttu pantað frá Þorlákshöfn, en komast ekki með bílinn frá Landeyjahöfn, geta væntanlega farið sjálfir með skipinu til Eyja. Bíllinn verður svo fluttur til Eyja um leið og pláss verður fyrir hann.

Mikið er bókað með Herjólfi um helgina. Blakmót öldunga verður m.a. haldið í Vestmannaeyjum og búist við um 1.000 keppendum. 

Guðmundur sagði að bæjarstjórn Vestmannaeyja og fleiri hafi óskað eftir því að strax yrði byrjað að sigla í Landeyjahöfn, þótt aðstæður séu þannig að einungis sé hægt að sigla þangað á flóði. Því fer Herjólfur tvær ferðir nú síðdegis í Landeyjahöfn og þrjár á morgun.

Áfram verður unnið að dýpkun Landeyjahafnar og er töluvert eftir, að sögn Guðmunds.  Hann reiknaði með að einhverjar takmarkanir yrðu á siglingu þangað vegna dýpisins næstu daga. Rif í hafnarmynninu er helsti þröskuldurinn.

„Við stöndum í þeirri trú að það sé búið að opna fyrir sumarið,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að talsverður léttir fylgdi því að geta aftur siglt í Landeyjahöfn. Það séu búnir að vera erfiðir tímar og margir óánægðir því fólki þyki  mikill munur að ferðast í Landeyjahöfn vegna stuttrar siglingar miðað við Þorlákshöfn.

Þá hefur verið leiðinlegt sjóveður í allan vetur með tilheyrandi veltingi og sjóveiki á siglingarleiðinni milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fleetwood Cheyenne 2006 - Tilboð 1.450.000 stgr.
Fleetwood Cheyenne 10 fet. Mjög vel með farið fellihýsi - lítið notað, nýskr. 20...
Nuddbekkjalök,Andlitslök,Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,
Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,Nuddbekkjalök,Andlitslök,N...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
Skoda Fabia
Skoda Fabia árg. 2006, ekinn 135 þús. Beinsk., útvarp m. geislaspilara, sumar- o...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...