Laun hækka um 4,25% í júní

Fulltrúar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins eftir undirskrift samninganna í …
Fulltrúar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins eftir undirskrift samninganna í dag. mbl.is/Ómar

Heildarlaunakostnaður atvinnulífsins vegna nýrra kjarasamninga mun aukast um 13% í heildina á samningstímanum sem er til 31. janúar 2014. Launakostnaður fyrirtækja í ákveðnum greinum hækkar meira. Almenn laun hækka um 4,25% þann 1. júní nk., 3,5% 1. febrúar 2012 og 3,25% þann 1. febrúar 2013.

Alþýðusamband Íslands segir, að almennar launahækkanir á næstu þremur árum séu 11,4% en hækkun lágmarkslauna sé þó mun meiri eða 23,6%. 50.000 króna eingreiðsla kemur til útborgunar þegar samningarnir hafa verið samþykktir í atkvæðagreiðslu og aðrar 25.000 krónur í tveimur greiðslum síðar á árinu en það kemur sem tímabundið álag á orlofs- og desemberuppbót.

Atvinnutryggingagjald mun lækka 2012. Samtök atvinnulífsins segja, að ef áætlanir um minna atvinnuleysi gangi eftir lækki gjaldið frá næstu áramótum og aftur í ársbyrjun 2013. Tryggingagjaldið í heild gæti lækkað um tæpt 1% um næstu áramót og um 0,3% til viðbótar 2013.

Lágmarkstekjutrygging fyrir fulla dagvinnu hækkar úr 165 þúsund krónum í 182 þúsund krónur á mánuði við gildistöku samninganna. Hún hækkar í 193 þúsund krónur þann 1. febrúar 2012 og 204 þúsund 1. febrúar 2013. Hækkunin nemur 23,6% á samningstímanum.

Í tengslum við gerð samninganna hefur ríkisstjórnin skuldbundið sig til leggja grunn að varanlegum hagvexti og auknum framkvæmdum í hagkerfinu þannig að þær verði um 350 milljarðar króna árið 2013. Að auki fylgja yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar tvær bókanir, önnur um málsmeðferð í sjávarútvegsmálum og hin um framkvæmd yfirlýsingarinnar.

Í kjarasamningunum er forsenduákvæði um að kaupmáttur aukist, verðlag haldist stöðugt, gengi krónunnar styrkist marktækt og að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum. Forsendur verða metnar í janúar ár hvert.

Vefur Alþýðusambands Íslands

Vefur Samtaka atvinnulífsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert