Fréttaskýring: Opnunarhátíð Hörpu flýtt um dag vegna Evróvisjón
Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is
Troðfullur salur tók vel á móti Sinfóníuhljómsveit Íslands á hennar fyrstu formlegu tónleikum í Hörpu í fyrrakvöld. Tónleikagestir höfðu beðið lengi eftir stundinni sem loks rann upp í gær – að hlýða á sveitina í sérstöku tónlistarhúsi.
Tónleikagestirnir biðu ekki síður spenntir eftir því að berja augum Hörpuna, sem var byrjað að reisa við höfnina fyrir um fjórum árum. Framkvæmdum við mannvirkið er ekki enn lokið, en það er afar tignarlegt að sjá nú þegar.
Opnað almenningi eftir viku
En hvenær geta þeir sem fengu ekki miða fyrir tónleikana í fyrrakvöld, gærkvöld og í kvöld komist inn í Hörpu? Vitanlega bíða fleiri eftir tækifæri fyrir því að sjá Hörpuna og spóka sig í sölum hennar. Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Ago ehf sem mun sjá um rekstur tónlistar- og ráðstefnuhússins, segir að það verði ekki fyrr en eftir viku. Dagana 13. til 15. maí verður sérstök opnunarhátíð haldin í Hörpu.„Núna munum við nota tímann til að læra af gærkvöldinu og stilla saman strengi fyrir næstu helgi. Þá erum við með beina útsendingu í sjónvarpi og miklu flóknari dagskrá, mikið af poppurum og öllu mögulegu. Við þurfum að vera rosalega vel undirbúin fyrir það,“ segir Þórunn, sem býst við því að fjöldi fólks muni leggja leið sína á hafnarbakkann til að skoða húsið eftir viku.
Opnunarhátíðin hittir á athyglisverðan og að margra mati slæman dag mánaðarins, föstdaginn þrettánda. Þórunn segir að sjónvarpsdagskráin hafi ráðið dagsetningunni.
„Við ætluðum upphaflega að vera fjórtánda, en þá er Evróvisjón. Þannig að við færðum okkur til um einn dag. Við erum ekkert hjátrúarfull með þetta. Við bara bökkuðum fyrir Evróvisjón, það er bara svoleiðis,“ segir Þórunn.
Fjöldi íslenskra tónlistarmanna kemur fram á opnunarhátíðinni.
Sinfónían og Gus Gus
Meðal þeirra sem koma fram á föstudagskvöldinu eru Sinfónían, Íslenska óperan, Gus Gus og Páll Óskar. Daginn eftir verður spilað í öllum sölum Hörpunnar og um kvöldið spila margar af þekktustu popp- og rokksveitum landsins, þar á meðal Hjaltalín, Apparat Organ Quartet og HAM. Sunnudagurinn verður svo helgaður yngstu aðdáendum Sinfóníunnar og músinni músíkölsku, Maxímúsi Músíkúsi.95% vinnunnar er lokið
Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri Austurhafnarverkefnis fyrir hönd ÍAV, segir að bróðurpartinum af vinnunni við Hörpu sé lokið.„Við erum núna búnir með 95% og þessi síðustu 5% erum við að klára núna í seinni hluta júní. Við ljúkum glerhjúpnum einhvern tímann í júní. Svo getur vel verið að það sé einhver sparðatíningur, eitthvert uppsóp eftir það sem tekur ekki að nefna,“ segir Sigurður.
Sigurður segir að starfsmönnum ÍAV og undirverktökum þeirra sem hafa unnið við Hörpu fækki ört, þar sem verkinu er að verða lokið.
„Það voru á milli fjögur hundruð og fimm hundruð manns í gær, en svo er þeim að fækka rosalega mikið í dag, á morgun og hinn,“ segir Sigurður sem telur að á bilinu fimmtíu til sjötíu manns muni starfa áfram þangað til verki lýkur.







































