Umferð um hringveg lokaðist eftir árekstur

Jökulsárlón
Jökulsárlón Ómar Óskarsson

Árekstur á Jökulsárbrú við Jökulsárlón um klukkan hálf þrjú í dag varð til þess að umferð lokaðist á hringveginum í hálfa aðra klukkustund.

Ekki var um harkalegan árekstur að ræða og enginn slasaðist. Fólksbíl var ekið aftan á annan fólksbíl sem snerist fyrir vikið, festist í hliðum brúarinnar og lokaði þannig umferð yfir hana þangað til hann var færður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert