Hrein eign lífeyrissjóða nærri 2000 milljarðar

Hrein eign lífeyrissjóða hér á landi var 1965 millljarðar króna í lok mars, að sögn Seðlbankans og jókst um 16,2 milljarða í mánuðinum eða um 0,8%.

Innlend verðbréfaeign hækkaði um 19 milljarða og nam rúmlega 1393 milljörðum í lok mánaðarins. Erlend verðbréfaeign nam um 483 milljörðum í lok mars og lækkaði því um 4 milljarða frá fyrri mánuði.

Sjóður og bankainnstæður hækkuðu hins vegar um rúma 1,5 milljarða á milli mánaða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert