Maðurinn er fundinn

Maðurinn fannst á Esjunni. stækka

Maðurinn fannst á Esjunni. hag / Haraldur Guðjónsson

Maðurinn sem leitað var að í Esjunni er fundinn. Hann mun hafa verið kominn yfir Laufskörðin og upp á Esjuna. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn og flutti hann á sjúkrahús til aðhlynningar. 

Uppfært klukkan 20.25 og 21.00

Svohljóðandi tilkynning er á heimasíðu Landhelgisgæslunnar:

„Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti kl. 20:06 við Landspítalann í Fossvogi með mann sem villtist við göngu á Esju. Var maðurinn heill á húfi en fluttur á sjúkrahús tl aðhlynningar.

Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar óskaði kl. 18:52 eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar við leitina. Fann þyrlan manninn kl. 20:01.“  

Svohljóðandi tilkynning barst frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu klukkan 20.13:

„Maðurinn sem leitað var að á Esju fannst heill á húfi núna rétt fyrir klukkan átta. Hann var þó illa áttaður og aðframkominn. Þyrla Landhelgisgæslunnar sem einnig tók þátt í leitinni sótti manninn og er hann núna á leið á bráðamóttöku Landsspítalans.

Hátt í 100 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni enda svæðið stórt og erfitt yfirferðar. Leitin gekk þó vel enda hreinsaði fjallið af sér í þann mund sem leitin hófst.“

Maðurinn var í símasambandi

Undanfarar og sérhæfðir leitarmenn úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út til leitar að manni í Esju um klukkan 18.00 í kvöld.

Maðurinn var í símasambandi en var orðinn mjög þreyttur. Hann hafði ætlað að ganga á Móskarðshnjúka austast í Esju, þaðan yfir Laufaskörð og á hábungu fjallsins en villtist á leiðinni.

Björgunarmenn fóru að svæðinu bæði austan og vestan megin fjallsins. Sem fyrr segir fannst maðurinn fyrir klukkan 20.00 og var hann þá kominn upp á Esjuna. Hann hafði því lagt að baki Laufskörðin sem eru einstigi um brattar hlíðar.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kominn til leitar og því var hún fengin til að flytja manninn á Landspítalann í Fossvogi til aðhlynningar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Óska eftir Dell 2950 þjóni ódýrt
Óska eftir Dell 2950 netþjóni eða sambærilegu. vinsamlegast sendi upplýsingar á ...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
Háfur frá Eirvík.
Elica Stone, til sölu. Upplýsingar í síma 664 1162 eða shanna@pasima.net....
Til sölu ný. Flutninga - Farangurskerra
Ný vönduð. Galvhúðuð klædd með álplötum. 2 hurðir stór afturhurð. max 750.kg Ber...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...