Jane og Dennis á mannanafnaskrá

Mannanafnanefnd hefur fallist á, að nöfnin Dennis og Jane verði færð á mannanafnaskrá.

Þá hefur nefndin endurskoðað úrskurð sinn frá því í janúar, þegar hafnað var að nafnið Annarr yrði fært á mannanafnaskrá. Nefndin hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að nafnið uppfylli kröfur um hefð og rithátt en nafnið er að finna í Snorra-Eddu.

Þá kemur fram að 16 íslenskar konur beri nafnið Jane.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert