Andlát: Jón Kr. Sólnes
Jón Kr. Sólnes hæstaréttarlögmaður lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 12. maí, 62 ára að aldri. Hann fæddist á Akureyri hinn 17. júní 1948 og var sonur hjónanna Ingu P. Sólnes húsfreyju og Jóns G. Sólnes, bankastjóra og alþingismanns.
Jón Kr. lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1969. Kandídatsprófi frá lagadeild Háskóla Íslands lauk hann árið 1975 og öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður 1976. Hann varð hæstaréttarlögmaður árið 1984 og fékk réttindi til fasteigna- og skipasölu árið 1988.
Samhliða námi var Jón Kr. ritari fjárveitinganefndar Alþingis. Að námi loknu var Jón Kr. einn af stofnendum Lögmannsstofunnar ehf. og starfaði sem lögmaður til dánardags. Þá stofnaði hann Fasteignasöluna Byggð ehf. sem hann rak á árunum 1988 til 2007.
Jón Kr. gegndi fjölmörgum nefndar- og stjórnunarstörfum. Hann sat í bæjarstjórn Akureyrar á árunum 1986 til 1994, sat í jafnréttisnefnd bæjarins og var formaður félagsmálaráðs og skipulagsnefndar. Jón Kr. var formaður skólanefndar Akureyrarbæjar árin 1998 til 2008, sat í stjórn Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri 1998 til 2008 og í skólanefnd Menntaskólans á Akureyri 2000 til 2008.
Þá sat hann í nefnd um heildarendurskoðun laga um grunnskóla árin 2006 til 2008. Jón Kr. var formaður yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis 2003 til 2007, sat í stjórn Akureyrardeildar Rauða Kross Íslands um áratugaskeið og var formaður hennar á árunum 1988 til 1989 og 1994 til 2000.
Hann var ábyrgðarmaður og stjórnarmaður Sparisjóðs Norðlendinga og forvera hans, síðar Byrs sparisjóðs, samfellt frá 1980 til 2009, þar af var hann formaður stjórnar 1993 til 2008 og á árinu 2009. Samhliða átti hann sæti í stjórnum ýmissa félaga á vegum sparisjóðsins, þ. á m. í Tækifæri hf. og Íslenskum verðbréfum hf. Þá var Jón Kr. formaður Sambands íslenskra sparisjóða um þriggja ára skeið.
Jón Kr. lætur eftir sig eiginkonu, Höllu Elínu Baldursdóttur grunnskólakennara, og fimm börn.
Innlent »
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 1. júní 2010, Innlent Útstrikanir í Kópavogi og á Akureyri flestar hjá D-lista
- Laugardagur, 19. júní 2010, Innlent Ríkið gæti orðið bótaskylt
- Miðvikudagur, 21. apríl 2010, Innlent Ástandið ekki eins slæmt og óttast var
- Þriðjudagur, 5. október 2010, Innlent Boðar stjórnarandstöðuna á fund
- Laugardagur, 14. maí 2011, Innlent Kvarta til umboðsmanns
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































