Hinsegin dagar fengu mannréttindaverðlaun
Jón Gnarr, borgarstjóri, afhenti fulltrúum Hinsegin daga mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar í Höfða í dag en 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar.
Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á þeim málum sem varða mannréttindi borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.
Hinsegin dagar voru stofnaðir árið 1999 og efndu samtökin til útihátíðar á Ingólfstorgi og sóttu um 1.500 manns hátíðina. Árið 2000 var fyrsta gleðigangan farin niður Laugaveg og hún hefur verið gengin árlega síðan, Talið er að hátt í 90.000 manns hafi fylgst með gleðigöngunni í ágúst á síðasta ári.
Jón Gnarr, borgarstjóri, sagði við afhendingu verðlaunanna að samtökin væru vel að viðurkenningunni komin. Hinsegin dagar ættu stóran þátt í þeirri miklu viðhorfsbreytingu sem orðið hefur gagnvart samkynhneigð á Íslandi og endurspeglaðist það meðal annars í endurbótum á lögum sem bæta líf samkynhneigðra.
Þorvaldur Kristinsson, forseti Hinsegin daga, tók við Mannréttindaverðlaununum fyrir hönd samtakanna. Verðlaunin eru keramiklistaverk eftir Einar Baldursson, íbúa á Sólheimum í Grímsnesi.
Innlent »
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 30. apríl 2012, Innlent Mannréttindaverðlaun afhent 16. maí
- Laugardagur, 7. ágúst 2010, Innlent Jón Gnarr leiðir gleðigöngu
- Laugardagur, 7. ágúst 2010, Innlent Þúsundir á Hinseginhátíð
- Þriðjudagur, 2. ágúst 2011, Innlent Hinsegin sigling og Regnbogahátíð
- Mánudagur, 6. febrúar 2012, Innlent Styrkja Hinsegin daga
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































