Eyjafjallajökull lenti í Washington

Klippt á borða í flugstöðinni á Duelles-flugvelli í Washington. Össur Skarphéðinsson og Birkir Hólm Guðnason ... stækka

Klippt á borða í flugstöðinni á Duelles-flugvelli í Washington. Össur Skarphéðinsson og Birkir Hólm Guðnason fengu aðstoð frá fulltrúum flugvallarins og borgarinnar. mbl.is/Björn Jóhann

Morgunblaðið Björn Jóhann Björnsson í Washington bjb@mbl.is

Boeing-þota Icelandair, Eyjafjallajökull, lenti á Dulles-flugvelli í Washington í gærkvöldi í fyrsta áætlunarflugi félagsins til höfuðborgar Bandaríkjanna. Við athöfn af þessu tilefni klippti Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á borða í flugstöðinni, með aðstoð Birkis Hólm Guðnasonar, forstjóra Icelandair, og fulltrúum flugvallarins og Washingtonborgar.

Líkt og venja er í fyrsta áætlunarflugi flugfélagana biðu slökkvibílar eftir vél Icelandair og sprautuðu yfir hana vatni er hún lagði að flugstöðinni. Fjöldi Íslendinga var viðstaddur athöfnina á flugvellinum, m.a. Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í Washington, embættismenn í sendiráðinu og starfsmenn Icelandair í Bandaríkjunum, auk þeirra farþega sem höfðu pantað sér far til Íslands í fyrstu ferðinni.

Fulltrúar flugvallarins og Washington-borgar lýstu í ræðum sínum mikilli ánægju sinni yfir áætlunarflugi Icelandair. Fram kom m.a. að þetta er 25. leiðin sem er í boði á vellinum milli tveggja höfuðborga. Fulltrúi Washington-borgar, Charles Wilson, rifjaði upp í sinni ræðu er hann keypti flugmiða í brúðkaupsferð handa sinni heittelskuðu fyrir 63 árum. Hann sagðist á þeim tíma ekki hafa mikil fjárráð og ákveðið að velja ódýrustu flugleiðina. Fyrir valinu varð Ísland, og flugu þau með Loftleiðum frá New York, með viðkomu í Goose Bay og á Grænlandi. Sagði hann Íslandsferðina hafa verið ógleymanlega og hjónabandið heldur enn í dag!

Össur Skarphéðinsson fagnaði í ræðu sinni þessum áfanga í sögu Icelandair. Félagið væri orðið með þeim reynslumeiri í flugheiminum í dag og líkt og stjörnurnar og tunglið, þá væri félagið alltaf á áætlun. Vitnaði Össur til þess að fjölmargir Íslendingar hefðu sótt Bandaríkin heim, einn af þeim væri víkingurinn og landkönnuðurinn Leifur Eiríksson. Hann hefði að vísu yfirgefið Bandaríkin en Icelandair ætlaði ekki að feta í hans fótspor.

„Icelandair ætlar ekki að yfirgefa ykkur hérna í Washington. Félagið ætlar að koma hingað fjórum sinnum í hverri viku," sagði Össur og uppskar mikinn hlátur viðstaddra.

Framlengja flugið til Washington 

Icelandair tilkynnti jafnframt í gær að áætlun félagsins til Washington hefði verið framlengd til út árið 2011 og bætt við 70 flugum yfir haust- og vetrarmánuðina. Upphaflega var áætlað að fljúga til og frá Washington í sumar frá 17. maí til 13. september en í apríl tilkynnti Icelandair um framlengingu flugsins um rúman mánuð og jafnframt var flugum fjölgað úr fjórum á viku í fimm flug á viku í júlí og ágúst í sumar. Nú hefur semsagt verið ákveðið að Washingtonflugið verði fjórum sinnum í viku til 8. janúar 2012 og hefjist síðan aftur af krafti þann 27. mars á næsta ári.

Washington er áttunda borgin sem Icelandair flýgur áætlunarflug til í Norður Ameríku. Hinar borgirnar eru New York, Boston, Seattle, Minneapolis og Orlando í Bandaríkjunum, og Toronto og Halifax í Kanada. Í sumar flýgur Icelandair 53 flug vikulega til Norður Ameríku, mun fleiri en önnur flugfélög á Norðurlöndum, að því er segir í tilkynningu frá Icelandair.

Leikinn var léttur djass að hætti Washington á Dulles-flugvellinum.

Leikinn var léttur djass að hætti Washington á Dulles-flugvellinum. mbl.is/Björn Jóhann

Slökkvibílar biðu eftir vél Icelandair, Eyjafjallajökli, og sprautuðu yfir hana í fyrsta áætlunarfluginu.

Slökkvibílar biðu eftir vél Icelandair, Eyjafjallajökli, og sprautuðu yfir hana í fyrsta áætlunarfluginu. mbl.is/Björn Jóhann

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2-3 herb.íbúð óskast til kaups
Óska eftir 2-3h. íbúð á Reykjavíkur sv. vinsamlegast sendið staðs. og verð á net...
Gisting á Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á rólegum og góðum stað á Akureyri. Sér inngangur...
N.P. ÞJÓNUSTA
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-, eftirlits- og gæslustörfum. Hafið samband í...
Barnabílstóll Maxi Cosi
Tveggja ára gamall vel með farinn Maxi Cosi barnabílstóll. Selst á 10.000 kr. Áh...
 
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...