Bifhjólamaður ber brigður á hraðamælingar úr þyrlu
Þyrla Landhelgisgæslunnar sveimar yfir svæðinu þar sem ökumaður mótorhjólsins var loks stöðvaður. mynd/Benedikt Finnbogi
Sýslumaðurinn á Selfossi gerir kröfu um að vélhjól bifhjólamanns verði gert upptækt og hann sviptur ökuréttindum með vísan til ákvæða í 107. grein umferðarlaga um stórfelldan eða ítrekaðan hraðakstur eða akstur sem telst sérlega vítaverður að öðru leyti.
Á fleygiferð á Hellisheiðinni
Varðar ákæran akstur mannsins frá Kömbunum og vestur Hellisheiði að kvöldi föstudagsins 30. júlí í fyrra og byggist krafan á fjórum hraðamælingum, tveimur á jörðu niðri og tveimur úr TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, umrætt kvöld.
Aðalmeðferð í máli sýslumannsins gegn manninum hófst hjá Héraðsdómi Suðurlands í gær og var henni frestað sökum þess að framburð eins vitnis skorti en heimildir blaðsins herma að Ragnheiður Thorlacius héraðsdómari hyggist taka málið upp eins fljótt og kostur er.
Ákæran er fjölþætt og varðar m.a. fjórar hraðamælingar. Hinn ákærði játar á sig eina hlið ákærunnar sem tengist hraðamælingu lögreglumanns með ratsjármæli á lögregluhjóli en samkvæmt henni var hann á 145 km hraða.
Lögreglumaðurinn veitti bifhjólamanninum eftirför og benti svonefnd jafnhraðamæling þá til að hann væri á 245 km hraða.
Vitnar til sömu forsendu
Maðurinn fellst ekki á síðarnefndu mælinguna og segir lögmaður hans, Bjarni Hauksson, málsvörnina byggjast á því að umræddar jafnhraðamælingar séu ófullnægjandi.
Játar ökumaðurinn heldur ekki á sig ákærur vegna tveggja jafnhraðamælinga úr þyrlunni á sömu forsendu en samkvæmt þeim var hann annars vegar á 198 km hraða og hins vegar á 235 km hraða þegar mælingarnar fóru fram. Almennur hámarkshraði á þessari leið er 90 km.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 5. júlí 2011, Innlent Hraðamæling úr þyrlu ekki örugg
- Mánudagur, 7. febrúar 2011, Innlent Bíllinn ekki gerður upptækur
- Fimmtudagur, 24. febrúar 2011, Innlent Sviptur ökuréttindum
- Föstudagur, 25. febrúar 2011, Innlent 20 teknir fyrir hraðakstur
- Föstudagur, 18. nóvember 2011, Innlent Laug í tvígang upp á bróður sinn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































