„Dagur ber saman gjörólíka hluti“
Baldur Arnarson baldura@mbl.is
„Dagur B. Eggertsson er að bera saman gjörólíka hluti. Það er enginn að ræða um að taka gengishagnað samstæðunnar og nýta hann í skattalækkanir. Það er verið að tala um afgang af rekstri borgarinnar og hann hefur ekkert með gengishagnað að gera,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, um þau ummæli formanns borgarráðs, að rangt væri að nýta gengishagnað til að lækka álögur á borgarbúa.
„Umræðan snýst um rekstrarafganginn sem er rétt tæpur einn og hálfur milljarður króna og hvort ekki sé sanngjarnt að nýta hann til þess að minnka álögur á borgarbúa, en þær hafa aukist um 150 þúsund krónur vegna ákvarðana nýs meirihluta. Dagur kýs hins vegar meðvitað eða ómeðvitað að halda því fram að umræðan snúist um að nýta bókfærðan gengishagnað samstæðunnar, sem er algjör fjarstæða. Umræðan snýst um rekstrarafganginn sem til staðar er vegna hagfelldari aðstæðna í hinum almenna rekstri borgarinnar og hefur ekkert með gengisbreytingar að gera.“
Harðorð bókun
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins bókaði þetta með harðorðum hætti í borgarráði í gær vegna ummæla Dags í Morgunblaðinu. Sagði þar m.a.: „Þótt það komi ekki á óvart að varaformaður Samfylkingarinnar vilji halda sköttum háum í Reykjavík, vekur það athygli að hann skuli skýra það með þeim rökum að ekki sé hægt að ráðstafa gengishagnaði. Með þeim skýringum gerir formaður borgarráðs sig sekan um mikla vanþekkingu á fjármálum borgarinnar eða vísvitandi blekkingu,“ sagði í bókuninni en skv. heimildum Morgunblaðsins er umræddur gengishagnaður fyrst og fremst tilkominn vegna Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrirtækið skuldar mikið í erlendum gjaldeyri og því hafði styrking krónu á síðasta ári jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins.Spurð um það sjónarmið Dags að á tímum mikils aðhalds beri ekki að draga úr álögum svarar Hanna Birna að allir séu sammála um nauðsyn aðhalds, en það „þurfi ekki að óþörfu að gera það með stöðugt meiri álögum á almenning“. „Það er heldur engin ástæða fyrir borgina að safna sérstökum sjóðum við þessar aðstæður.
Á sínum tíma náðum við afgangi – þetta er í þriðja sinn sem við gerum það – og þá var sá afgangur nýttur vegna þeirrar óvissu sem var í kringum Orkuveitu Reykjavíkur. Hinn almenni rekstur gengur hins vegar vel, lausafjárstaðan er góð og við eigum að leggja alla áherslu á að almenningur njóti þess en ekki kerfið sjálft,“ segir Hanna Birna.





































