Hvítt vor á Norðurlandi
Það var kuldalegt í Héðinsfirði í gærkvöldi og síðan hefur bætt enn í snjókomuna. mbl.is/Sigurður Ægisson
Áfram er spáð snjókomu á Norður- og Austurlandi í dag og gæti færð á vegum spillst. Víða frysti á Norðausturlandi í nótt og er spáð næturfrosti aftur í nótt víða um land.
Á Siglufirði og yfir í Héðinsfjörð var orðið grátt í gærvöldi og í gærkvöldi bætti í snjókomuna. Er þar nú allt orðið hvítt og enn leiðindaveður, að sögn heimamanna, þótt dregið hafi úr úrkomunni.
Fuglar réðu ekki við neitt í verstu hviðunum, og létu berast undan norðanáttinni, og ljóst er að varp hefur spillst mjög, einkum hjá mófuglunum. Æðarkollan er hins vegar seig og álftin gefur sig ekki í hólmanum í Langeyrartjörninni.
Hiti það sem af er þessum mánuði er enn tveimur stigum yfir
meðalhita í maí, þótt nú hafi kuldakast staðið um hríð. Fram til 10. maí
var mikil blíða og hitinn heilum fjórum stigum yfir meðaltali.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að um helgina verði kalt í veðri og búast megi við snjókomu á Norðausturlandi og éljum um norðvestanvert landið. Hann segir að í vorhreti af þessu tagi sé loftið yfirleitt þurrt, enda ættað af heimskautasvæðum. Ef sólin nái að skína fari hitinn upp fyrir frostmark og bræði þann snjó sem fellur. Um helgina verði hins vegar skýjað um norðanvert landið og þar verði því kalt og klárlega næturfrost.
Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur á bloggsíðu sinni sagt frá kuldapolli fyrir norðan landið sem gæti um helgina gengið suður með vestanverðu landinu. Hann tekur fram að umfjöllunarefni hans sé ekki beinlínis spá, en þó möguleiki sem gæti komið upp.
Trausti segir að snjó festi nánast aldrei í Reykjavík eftir 20. maí, en ef það snjói í Reykjavík um helgina gæti svo farið að flestir svæfu það af sér og fæstir yrðu þess varir.
„Það er helst að árrisulir borgarbúar í hinum efri byggðum geti orðið varir við snjó,“ segir Trausti. Hann segir að þó svo kuldakastið, sem er frekar vægt, standi enn um sinn gæti hitastigið í mánuðinum endað í meðallagi.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Hvítt vor á Norðurlandi //og vestfjöðum og austurlandi ,en það ... -
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. maí 2011, Innlent Spáð snjókomu á Norðurlandi
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Varað við snörpum vindhviðum
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Laugardagur, 5. maí 2012, Innlent Sumarið lætur bíða eftir sér
- Þriðjudagur, 17. maí 2011, Innlent Spáð vorhreti um helgina
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































