Meðan fæturnir bera mig
Signý Gunnarsdóttir og Sveinn Benedikt Rögnvaldsson hafa fylgt syni sínum Gunnari Hrafni eða Krumma í gegnum erfiða meðferð við hvítblæði mbl.is/Golli
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Tvenn hjón hlaupa hringinn um landið í júní til að safna áheitum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og leggja þau að baki 100 km á dag í fimmtán daga.
Signý Gunnarsdóttir og Sveinn Benedikt Rögnvaldsson hafa fylgt syni sínum Gunnari Hrafni eða Krumma í gegnum erfiða meðferð við hvítblæði og birtist áhrifarík frásögn af því í máli og myndum í Sunnudagsmogganum í dag.
Þau hlaupa hringinn ásamt systur Sveins og mági, Ölmu Maríu Rögnvaldsdóttur og Guðmundi Guðnasyni.
„Yfirskrift verkefnisins er Meðan fæturnir bera mig,“ segir Signý. „Þremur dögum fyrir Reykjavíkurmaraþon í fyrra ákvað ég að hlaupa 10 km og safna áheitum. Það gekk ótrúlega vel, það söfnuðust miklir fjármunir á skömmum tíma. Eftir það veltum við framhaldinu fyrir okkur og þegar ég var í baði kviknaði þessi hugmynd. Svenni hélt ég væri biluð!“ segir hún og hlær.
„Eigum við að hlaupa hringinn?“ rifjar Sveinn upp og hristir höfuðið brosandi. „Já einmitt!!“
En áður en langt um leið hafði hann líka tekið ástfóstri við hugmyndina. „Ég heyrði að aldrei hefði verið ráðist í söfnun með þessum hætti áður. Við töluðum við systur mína og mág minn, sem eru maraþonhlauparar, og þá kviknaði hugmynd að því að hlaupa hringinn og skiptast á. Þannig förum við tæpa 100 km á dag eða um 24 km á mann.“
Fólk getur styrkt framtakið með því að senda sms í símanúmerin 904-1001 (1000 kr.), 904-1003 (3.000 kr.) og 904-1005 (5.000 kr.) eða komið með áheit á vefsíðu söfnunarinnar, http://www.mfbm.is/.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 2. júní 2011, Innlent Lagt af stað hringinn
- Mánudagur, 13. júní 2011, Innlent Frábærar móttökur á Hvammstanga
- Fimmtudagur, 2. júní 2011, Innlent Hlaupið gekk framar vonum
- Fimmtudagur, 16. júní 2011, Innlent Hlaupa síðasta sprettinn í dag
- Föstudagur, 3. júní 2011, Innlent Með vindinn í bakið að Vík
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































