„Allir komu brosandi í land“
Norræna lagðist að bryggju nú síðdegis, eftir að hafa orðið að lóna út með firðinum síðan í morgun vegna veðurs. Um borð voru um 570 farþegar. Jónas Hallgrímsson, talsmaður Austfars, segir alla hafa komið brosandi í land, eftir að hafa fengið útsýnisferð út með firðinum.
Útlit var fyrir að ferðamenn með skipinu kæmust ekki yfir Fjarðarheiði vegna ófærðar en að sögn Jónasar var hún mokuð ,,niður í malbik" í dag og ætti að vera ágætlega færa öllum bílum. Eru nú hálkublettir þar, samkvæmt vef Vegagerðarinnar.
,,Þetta er búið að vera þrúgandi ástand, maður man ekki eftir öðru eins á þessum árstíma," sagði Jónas, sem hafði meiri áhyggjur af færðinni á Fagradal og Möðrudalsöræfum en á Fjarðarheiði þar sem þar hefði kyngt niður meiri snjó síðustu daga.
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er nú hálka og skafrenningur á Fagradal og Möðrudalsöræfum. Þjóðvegurinn suður fyrir land er lokaður vegna eldgossins í Grímsvötnum þannig að ferðamenn með Norrænu verða að fara norður fyrir land, ætli þeir ekki að byrja Íslandsferð sína á Austfjörðum.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 24. maí 2011, Innlent Norræna bíður átekta
- Þriðjudagur, 24. maí 2011, Innlent „Hér hefur snjóað í marga sólarhringa“
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Prinsessan siglir á brott
- Föstudagur, 10. júní 2011, Innlent Snjór víða um land
- Laugardagur, 30. október 2010, Innlent Versnandi veður á Austurlandi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































