Innlent
| Morgunblaðið
| 25.5.2011
| 5:30
| Uppfært
6:33
Ætlað að tryggja að allir eigi vini
„Undirbúningsvinna að verkefninu fór fram á vordögum 2008. Strax í upphafi voru margir aðilar kallaðir til frá öllum skólastigum, íþrótta- og tómstundageiranum og foreldrafélögum. Í upphafi var þeirri spurningu varpað fram hvernig við gætum staðið saman í að koma í veg fyrir vinaleysi barna og unglinga,“ segir Hanna Dóra Björnsdóttir, formaður vinateymis í Vinaverkefninu í Skagafirði en það fékk í gær foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra árið 2011.
„Það komu fram margar hugmyndir um útfærslu. Niðurstaðan var svokallað vinateymi. Það fundar mánaðarlega eða hér um bil. Þar er frjór jarðvegur fyrir skoðanaskipti og þar er ýtt undir samstarf foreldra. Við leggjum áherslu á forvarnir og vinnum einnig eftir viðbragðsáætlun en samkvæmt henni geta foreldrar leitað til vinateymis.“
Ráðherra afhenti verðlaunin
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti Foreldraverðlaunin en þau voru veitt í sextánda sinn. Þá voru veitt ein hvatningarverðlaun en þau hlaut Foreldrafélagið Örkin hans Nóa, leikskólanum Nóaborg, fyrir „framúrskarandi gott foreldrasamstarf“. Dugnaðarforkaverðlaun 2011 voru veitt Þórólfi Sigjónssyni og Guðnýju Vésteinsdóttur, „foreldrum barna í Hallormsstaðarskóla, fyrir sjálfboðaliðastarf á tímum fjárskorts, og öfluga og virka þátttöku foreldra í skólastarfinu“.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 24. maí 2011, Innlent Foreldraverðlaunin í Skagafjörð
- Miðvikudagur, 16. maí 2012, Innlent Fengu verðlaun frá Heimili og skóla
- Miðvikudagur, 30. júní 2010, Innlent Samstarfssamningur undirritaður
- Þriðjudagur, 1. júní 2010, Innlent Foreldrar verðlaunaðir
- Föstudagur, 1. apríl 2011, Innlent Vilja tilnefningar til foreldraverðlauna
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
DÍSEL BMW 525 station, sjálfskiptur, nýskoðaður 2013
Til sölu Bmw 525 dísel station nýskráður 4.12.2002, nýskoðaður 2013, sjálfskiptu...
Yamaha FJR 1300
Fyrsta flokks og glæsilegt mótorhjól.
Yamaha FJR 1300 ár 2007 ekið 4.000 km
V...
Rafskutla til sölu
Til sölu ónotuð rafskutla. Hentaði ekki viðkomandi einstaklingi.
Verð: 295.000...
ÖFLUGIR FJARSTÝRÐIR RAFMAGNS
Öflugir fjarstýrðir bensín- og rafmagnsbílar í ...




































