Bakslag í áætlanir um kísilverksmiðju

Þorlákshöfn.
Þorlákshöfn. www.mats.is

Svo virðist sem bakslag sé komið í fyrirhugaðar framkvæmdir við kísilverksmiðju í Þorlákshöfn sem ætlunin var að risi þar innan fárra ára. Vefur Sunnlenska hefur eftir Ólafi Erni Ólafssyni, sveitarstjóra, að málið sé ekki á þeirri ferð, sem heimamenn hefðu óskað.

„Við hefðum viljað sjá meiri gang í þessu,“ segir Ólafur Örn við sunnlenska.is

Verkefnið sé háð því að til þess fáist 85 megavött af raforku. Hafi framkvæmdaaðilinn gert rammasamning við Orkuveitu Reykjavíkur um að fá þá orku afhenta á tilsettum tíma en nú sé ljóst að Orkuveitan sé ekki í stakk búið að standa við þann samning. Því sé ólíklegt að framkvæmdir við verksmiðjuna hefjist á næsta ári eins og áætlanir voru um.

Sunnlenska.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert