Útsvar ekki lækkað
Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hafnaði í dag tillögu frá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins um að rekstrarafgangur Reykjavíkurborgar yrði notaður til þess meðal annars að draga til baka hækkanir á útsvari og umdeildar skólasameiningar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna.
Lögðu sjálfstæðismenn til að núgildandi fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar yrði endurskoðuð í ljósi rekstrarafgangs borgarsjóðs upp á 1.472 milljónir króna.
„Lagt var til að það yrði gert með því að draga til baka hækkanir á útsvari borgarbúa og hverfa frá áformum um umdeildar skólasameiningar. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bentu á að slíkar breytingar myndu hafa víðtæk áhrif fyrir borgarbúa, en myndi einungis draga úr afgangi borgarsjóðs um tæpan þriðjung þar sem kostnaður vegna þessara tillagna yrði lægri um 400 milljónir og enn eftir stæði rúmlega milljarður í afgang,“ eins og segir í tilkynningunni.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, sagði á fundi borgarstjórnar í dag að með því að hafna tillögu sjálfstæðismanna hefði meirihlutinn í borgarstjórn „eina ferðina enn gerst sekur um að forgangsraða í þágu kerfisins en ekki fólksins.“
Tillaga borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins:
„Borgarstjórn telur mikilvægt að rekstrarafgangur síðasta árs verði nýttur beint í þágu íbúa borgarinnar. Með það að markmiði samþykkir borgarstjórn að hafin verði vinna við endurskoðun gildandi fjárhagsáætlunar, annars vegar þannig að fyrirhugaðar útsvarshækkanir verði dregnar til baka og hins vegar þannig að fyrirhugaðar skólasameiningar verði endurskoðaðar og taki ekki gildi á þessu ári. Kostnaður vegna þessara breytinga á fjárhagsáætlun 2011 myndi verða um helmingur þess tekjuauka sem áætlaður var með hækkun á útsvarshlutfalli, ásamt þeim sparnaði sem skólasameiningar skyldu tryggja á árinu. Kostnaður vegna þessara breytinga á gildandi fjárhagsáætlun yrði þannig aldrei meiri en sem nemur 400-500 milljónum (ræðst af því hvenær á árinu skattalækkun tekur gildi) sem er einungis um þriðjungur þess rekstrarafgangs sem ársreikningur staðfestir. Borgarstjórn telur því fjármagni vel varið til að standa vörð um hag, kjör og velferð borgarbúa.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 6. desember 2011, Innlent Sjálfstæðismenn vilja lækka útsvar
- Þriðjudagur, 30. nóvember 2010, Innlent Reynt að fara vægt í hækkanir
- Föstudagur, 20. ágúst 2010, Innlent Vilja auka íbúalýðræði í borginni
- Þriðjudagur, 15. febrúar 2011, Innlent Tillögu um hagræðingu á menntasviði vísað til borgarráðs
- Þriðjudagur, 15. nóvember 2011, Innlent Ekki svigrúm til að lækka útsvar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































