Baðst afsökunar á Falun Gong-máli
Falun Gong-liðar mótmæltu er forseti Kína kom til Íslands sumarið 2002. mbl.is/Þorkell
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagðist á Alþingi í dag geta fyrir hönd ríkisstjórnarinnar beðið þá, sem komu hingað til lands árið 2002 vegna heimsóknar forseta Kína, afsökunar á meðferð sem þeir sættu.
Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag, að ljóst væri að íslensk stjórnvöld hefðu brotið gegn málréttindum, mál- og tjáningarfrelsi Falun Gong liða, sem komu til landsins á þessum tíma, það hefðu Persónuvernd og umboðsmaður Alþingis staðfest. Spurði hún Össur hvort ekki væri tímabært að íslensk stjórnvöld biðjist afsökunar á framferði sínu gagnvart þessu fólki.
Össur sagði alveg víst, að þetta muni ekki endurtaka sig á meðan núverandi stjórn situr. Engum verði meinaður réttur til að tjá sig og koma skoðunum á framfæri svo framarlega sem ekki væri um að ræða samtök á lista yfir alþjóðleg glæpasamtök.
„Ég get, fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar, héðan úr þessum stóli, beðið þá sem þá komu og urðu fyrir brotum af þessu tagi, afsökunar," sagði Össur. Hann sagði st hafa lýst því yfir áður, að þarna hefði verið farið út fyrir það sem heimilt var. „Ég er reiðubúinn fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar að biðja þá afsökunar sem fyrir urðu á sínum tíma."
Margrét fagnaði þessu og hvatti ríkisstjórnina alla til að biðjast formlega afsökunar á málinu. „En þetta var frábært framtak, finnst mér," sagði hún.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 21. apríl 2012, Innlent Falun Gong á Austurvelli
- Miðvikudagur, 28. mars 2012, Innlent „Kurteisi að Falun Gong fái bætur“
- Þriðjudagur, 7. desember 2010, Innlent Vildu ekki láta loka Varnarmálastofnun
- Laugardagur, 25. september 2010, Innlent Íranar þyrmi lífi Ashtiani
- Þriðjudagur, 13. september 2011, Innlent Stórskotaliðsárásir forseta
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































