Skyldunám verði lengt um 2 ár

ASÍ-UNG.
ASÍ-UNG.

ASÍ-UNG telur að skoða þurfi lengingu á skyldunámi um tvö ár, þ.e. til 18 ára aldurs. Auka þurfi framboð á námi með vinnu, þ.e. fjarnám eða kvöldskóla og gera aðgengilegt fyrir alla um allt land. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á stofnþingi hreyfingarinnar. 

Þingið ályktaði um nauðsyn þess að auka fjölbreytni og aðsókn í iðn- og starfsnám ásamt því að stuðla að hugarfarsbreytingu í þjóðfélaginu gagnvart iðn- og starfsnámi og efla þarf raunfærnimat. Einnig telur ASÍ-UNG að kynna þurfi og efla starfsnám í grunnskólum.  Sérstaklega er þörf á viðhorfsbreytingu á námi tengdu fiskvinnslu og sjávarútvegi. 

„ASÍ-UNG telur að skoða þurfi lengingu á skyldunámi um tvö ár þ.e. til 18 ára aldurs.  Auka þarf framboð á námi með vinnu þ.e. fjarnám eða kvöldskóla og gera aðgengilegt fyrir alla um allt land.  ASÍ-UNG  vill hvetja skóla og kennara til þess að nýta síðustu daga skólaársins á vorin til þess að sýna nemendum hvaða atvinnumöguleikar eru í boði á hverju landsvæði og jafnvel fá nemendur til þess að prófa sjálf ýmis handtök. 

ASÍ-UNG skorar á stjórnvöld til að fylgja eftir markmiðum í áætlun Ísland 2020  að gefa fólki annað tækifæri til náms með því að  auka aðgengi að styrkjum, námslánum ásamt möguleikum á greiðslum úr fræðslusjóðum á meðan á námi stendur.

ASÍ-UNG telur mikilvægt að breyta þurfi ásýnd verkalýðshreyfingarinnar,  verkalýðsfélög eru ekki bara sumarbústaðir og íþróttastyrkir.  Gera þarf ungu fólki grein fyrir mikilvægi starfsins sem fer þar fram og efla þarf fræðslu ungs fólks um réttindi og skyldur á vinnumarkaði.  Fá atvinnurekendur og mennta- og menningarmálaráðuneytið með í að útbúa fræðsluefni til ungs launafólks um vinnumarkaðinn,“ segir í ályktun ASÍ-UNG um menntamál.

Þá krefst ASÍ-UNG þess að valkostum á húsnæðismarkaði sé fjölgað t.d með auknu framboði á leigu-og kaupleiguhúsnæði. „ASÍ-UNG telur það vera grundvallaratriði að allir hafi möguleika á öruggu búsetuformi sem hentar á viðráðanlegum kjörum. Draga þarf úr tekjutengingu í húsaleigubótakerfinu þannig að námsmönnum og ungu launafólki sé tryggður ásættanlegur húsnæðisstuðningur,“ segir í ályktun um húsnæðismál.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert