Ölvaðir ökumenn óku á fólk í miðborginni
Mikill erill var hjá lögreglu í nótt. Átta gista fangageymslur vegna ýmissa brota, nokkrir vegna ölvunaraksturs. Tveir þeirra óku á fólk í miðborginni, annar á stúlku á Laugavegi og hinn utan í hóp fólks í Bankastræti með þeim afleiðingum að einn slasaðist.
Lögreglan hafði afskipti af níu ökumönnum sem óku undir áhrifum á höfuðborgarsvæðinu í nótt, sem er í hærra lagi.
Hún segir að um miðnættið hafi ökumaður ekið á stúlku á Laugavegi við Smiðjustíg. Ökumaðurinn var grunaður um ölvun við akstur og var handtekinn. Ekki liggur fyrir hvort stúlkan hafi slasast mikið.
Á þriðja tímanum í nótt ók ölvaður ökumaður utan í hóp fólks í Bankastræti. Einn slasaðist og var fluttur á slysadeild. En að sögn lögreglu var ekið yfir ristina á viðkomandi. Ökumaðurinn stakk af.
Hann sneri hins vegar aftur nokkrum mínútum síðar, en þá voru lögreglumenn að sinna öðru verkefni í Bankastrætinu. Þá réðist æstur hópurinn á bílinn og skemmdi hann. Lögreglumenn urðu að skakka leikinn og handtóku þeir ökumanninn eftir nokkur átök.
Hitt verkefnið sem lögreglan var að sinna í Bankastrætinu tengist slysi. Að sögn varðstjóra skall stúlka í götuna með andlitið þegar hún var að reyna að klifra upp á pallbíl sem ók svo af stað. Stúlkan vankaðist við höggið og var flutt á slysadeild.
Þá varð útafakstur á Elliðavatnsvegi við Vífilsstaðavatn um 2:30 í nótt. Ökumaður var einnig grunaður um ölvun við akstur.
Um eittleytið í nótt varð slys í Kópavogi þegar leigubifreið ók af stað áður en farþeginn var almennilega kominn inn í bifreiðina. Við það féll farþeginn.
Handtekinn vopnaður piparúða og kjöthamri
Lögreglan handtók mann á fimmta tímanum í nótt, sem hafði verið meinaður aðgangur að veitingastað í miðborginni. Maðurinn var ekki sáttur við dyravörðinn og fór því heim til að sækja piparúða og kjöthamar. Þegar hann sneri aftur á veitingastaðinn úðaði hann úr piparúðanum á dyravörðinn. Lögreglan var kölluð á staðinn og handtók hún árásarmanninn, sem beitti ekki hamrinum. Voru aðrir dyraverðir búnir að yfirbuga manninn þegar hún kom.
Þá var tilkynnt um slagsmál á poolstofu í Reykjavík um 1:30 í nótt.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 6. júní 2010, Innlent Ekið á stúlku á Laugavegi
- Sunnudagur, 11. desember 2011, Innlent Tveir teknir fyrir ölvunarakstur
- Laugardagur, 25. febrúar 2012, Innlent Tvær líkamsárásir í miðborginni
- Laugardagur, 7. janúar 2012, Innlent Stálu frá slökkviliðinu
- Laugardagur, 3. mars 2012, Innlent Fíkniefnaræktun og þrjótar í umferðinni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































