Hækkandi álverð skilar auknum tekjum fyrir orkuframleiðendur

mbl.is/ÞÖK

Samtök álframleiðenda, Samál, segir að álverð hafi hækkað um fjórðung á einu ári. Þessar miklu hækkanir leiði til aukinna útflutningstekna af áli.

Samál segir að við lokun markaða í gær hafi álver staðið í 2,548 dölum miðað við þriggja mánaða samning. Verðið hafi hækkað um 27% á síðastliðnu ári og nærri 40% ef horft sé til lágpunkts í álverði um mitt síðasta ár.

„Þessar miklu hækkanir leiða til aukinna útflutningstekna af áli. Þannig jukust útflutningstekjur af áli á föstu gengi um 5% fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Námu þær samtals liðlega 56 milljörðum króna,“ segir Samál í tilkynningu.

Bent er á að í þeim tilfellum þar sem raforkuverð til innlendra orkufyrirtækja sé tengt álverði skili þessi mikla hækkun umtalsverðri hækkun á raforkuverði. Meðalverð Landsvirkjunar til stóriðju á síðasta ári hafi verið 25,7 dalir á megavattsstund, og hafi hækkað um liðlega 30% á milli ára. Álverð nú sé nærri fimmtungi hærra en að meðaltali á síðasta ári. Það samsvari því að meðalverð til stóriðju sé nú um 30 dalir á megavattsstund, miðað við fyrrgreindar tölur Landsvirkjunar. Hafa beri þó í huga að um ekki eru allar raforkutekjur Landsvirkjunar til stóriðju tengdar álverði.

Haldist álverð áfram gæti það aukið raforkutekjur íslenskra orkufyrirtækja um liðlega 4 milljarða króna á þessu ári.

Heimasíða Samáls.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert