„Fullt tilefni til að vera bjartsýn“
Frá flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Garðabæ í dag. Á myndinni sjást þau Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. mbl.is/Kristinn
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir mögulegt að fjárfestingar í orkufrekum iðnaði og tengdum virkjanaframkvæmdum á næstu þremur til fimm árum getið numið á bilinu 300-400 milljörðum kr.
Þetta yrði á bilinu sex til sjö þúsund ársverk við uppbygginguna.
„Við höfum því fullt tilefni til að vera bjartsýn á framhaldið,“ sagði Jóhanna í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar, sem fram fer í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ.
Þá sagðist hún reikna með að nú styttist verulega í að tilkynnt verði um framkvæmdir í tengslum við orkufrekann iðnað á Norðurlandi.
„Ég er líka orðin mun bjartsýnni en áður, um að Norðurál nái semja við HS orku og Orkuveituna um nægilega orku til að álver þeirra í Helguvík geti orðið að veruleika með tilheyrandi framkvæmdum við Hverahlíðarvirkjun, Reykjanesvirkjun og línulagnir í tengslum við orkufrekann iðnað á Suðurnesjum,“ sagði Jóhanna.
Ef ofangreind verkefni ganga öll eftir gætum við því verið að tala um fjárfestingar í orkufrekum iðnaði og tengdum virkjanaframkvæmdum uppá 300-400 milljarða á næstu þremur til fimm árum og sex til sjö þúsund ársverk við uppbygginguna,“ sagði Jóhanna í ræðu sinni.
Þá benti hún á að rammááætlun og þar með röðun virkjanakosta og verndarsvæði og vatnalög verði afgreidd fyrir næsta vetur. Á grundvelli hennar geti Landsvirkjun og aðrir aðilar lagt grunn að framtíðaruppbygginu virkjana og orkusölu þannig að hámarka megi arð þjóðarinnar af orkuauðlindum sínum.
„Þar er grundvallaratriði að handstýringu stjórnvalda um hvar skuli virkja sé lokið. Rammanáætlun á að vera okkar leiðsögutæki og þar eiga viðskiptaleg sjónarmið að ráða ferðinni annarsvegar og náttúruvernd hinsvegar,“ segir forsætisráðherra.
Stefnt sé að a.m.k. tveimur umfangsmiklum fjárfestingaverkefnum í orkufrekum iðnaði auk þeirra umfangsmiklu framkvæmda sem þegar séu komnar á stað við Búðarhálsvirkjun, álverið í Straumsvík, Kísilverksmiðju í Helguvík, Gagnaver á Suðurnesjum, álverið á Reyðarfirði og víðar.
Bloggað um fréttina
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Austurvöllur klukkan sex í dag! -
Axel Jóhann Axelsson Gamanþáttur Jóhönnu og Hrannars endurtekinn -
Haraldur Haraldsson „Fullt tilefni til að vera bjartsýn“/það eru kosningar sem um ... -
Jón Baldur L'Orange Það er fullt tilefni til að vera bjartsýn, þrátt fyrir ... -
Gísli Sigurðsson Og hvernig standa svo málin? -
Sigurður Jónsson Jóhanna að hætta? Segir að bjart sé framundan.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 13. september 2011, Innlent Segir Steingrími „skítsama“ um afleiðingarnar
- Mánudagur, 6. júní 2011, Innlent Hreyfing komin á fjárfesta
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Þriðjudagur, 27. mars 2012, Innlent Verkefni stopp eða slegin af
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































