Samfylkingin ræðir umbætur

Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert

Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar hefst aftur kl. 11 í dag með ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar. Fundurinn er haldinn í Fjölbrautarskóla Garðabæjar.

Að ræðu lokinni taka við almennar umræður ar sem m.a. málefnanefndir flokksins greina frá niðurstöðum sinna funda en fjöldi flokksmanna vann í þeim fyrir hádegi í gær.

Þjóðaratkvæði um kvótakerfið

Fundarmenn hafa lagt fram tvær tillögur sem verða afgreiddar í dag.

Í annarri þeirra er skorað á ríkisstjórnina að standa fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um fiskveiðistjórnunarkerfið. Þrír valkostir verði í boði fyrir kjósendur. Í fyrsta lagi óbreytt fiskveiðistjórnunarkerfi. Í öðru lagi núverandi frumvarp ríkisstjórnarinnar. Og í þriðja lagi fyrningarleið eins og boðuð hafi verið í stjórnarsáttmálanum með viðbótarákvæði um að veiðiheimildir verði leigðar út á jafnréttisgrunni þannig að mannréttindi verði virt.

Jóhanna setti fundinn í hádeginu í gær, en þar fór hún yfir umbótastarf Samfylkingarinnar sem fram hefur farið innan flokksins síðasta árið.

Hún sagði að væri mikilvægum áfanga náð í umbótaferlinu og áfram verði unnið að umbótum innan flokksins fram að landsfundi sem haldinn verður á höfuðborgarsvæðinu í haust dagana 21.-23. október. 

Næstur tók til máls gestur fundarins, Bertil Kinnunen, framkvæmdastjóri jafnaðarmanna í Uppsalaléni í Svíþjóð, sem fjallaði um nýjar áherslur í flokksstarfi sænskra jafnaðarmanna.   Margrét Björnsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, fór yfir tillögur umbótanefndar undir yfirskriftinni Betri stjórnmál – Sterkari Samfylking.  Margrét fór síðan yfir tillögur framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar að málsmeðferð og afgreiðslu á tillögunum, byggðum á umsögnum aðildarfélaga flokksins og niðurstöðum fundanna um allt land.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert