Góð regla að skola grænmeti
„Góð regla er kannski sú að skola vel allt grænmeti. Það getur hjálpað,“ segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir. Landlæknisembættið gaf í gær út tilkynningu þess efnis að fólk ætti að forðast að neyta hrás grænmetis ef það er á ferð um Norður-Þýskaland en tilfelli E. coli sýkingar í Evrópu má flest öll rekja þangað. Talið er að sýkinguna megi rekja til mengaðs grænmetis en uppruni hennar er ófundinn.
Mörg hundruð manns hafa sýkst og nokkrir látist af völdum bakteríunnar. Ekki er talið að mengað grænmeti hafi borist til Íslands en að sögn Haraldar er íslenska heilbrigðiskerfið í viðbragðsstöðu ef tilfelli E. coli sýkingar kemur upp hér á landi. Að skola grænmeti kemur ekki í veg fyrir sýkingu en getur dregið úr líkum á henni.
„Það er erfitt að rekja svona upptök. Innflutt grænmeti getur mengast víða, til dæmis á leiðinni milli landa eða þegar beðið er eftir umskipun. Það gæti skýrt af hverju þessi sýking er að mestu bundin við Norður-Þýskaland,“ segir Haraldur um bakteríuna. „Við viljum að fólk viti af þessu ef það er á ferð um þetta svæði. Vonandi tekst að stoppa þetta.“
Aðspurður um hvort þetta gæti orðið stór faraldur segir Haraldur að faraldrinum ætti að linna um leið og hægt er að rekja upptökin og taka menguð matvæli úr umferð. Krossmenganir milli matvæla eða á milli manna eru mögulegar en sjaldgæfar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 30. maí 2011, Innlent Borði ekki hrátt grænmeti í Þýskalandi
- Þriðjudagur, 21. júní 2011, Innlent Hvatt til grænmetisneyslu
- Föstudagur, 30. desember 2011, Innlent Flensan fer rólega af stað
- Þriðjudagur, 10. ágúst 2010, Innlent Of snemmt að blása flensuna af
- Föstudagur, 22. júlí 2011, Innlent Ákvörðun tekin í haust
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































