25 bílar, þar af 20 dísilbílar, taka nú þátt í sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu, sem nú stendur yfir.
Karl V. Matthíasson formaður Umferðarráðs setti keppnina á Bíldshöfða. Bílunum er ekið 142 kílómetra upp Mosfellsdalinn, Grafninginn hjá Þingvallarvatni, framhjá Selfossi og Grafning til baka í höfuðborgina.
Um er að ræða nýja bíla, sem bílaumboðin útvega til keppninnar.