Frekari fornleifarannsóknir þarf á Landspítalalóð
Bæjarhús Grænuborgar fundust ekki í forkönnun Fornleifaverndar ríkisins vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Landspítalalóðinni sem fram fór á dögunum á túninu fyrir framan gamla spítalann. Telur Fornleifavernd að ráðast verði í frekari rannsóknir á svæðinu.
Á framkvæmdavef Landspítala er vísað í svar Fornleifaverndar ríkisins til framkvæmdastjóra Nýrs Landspítala ohf., að þrátt fyrir að óvenju stór svæði hafi verið opnuð, miðað við að um forkönnun var að ræða, hafi bæjarhús Grænuborgar ekki fundist og ekki hafi tekist að staðfesta að býlið hafi staðið þar sem líkur þóttu benda til, þ.e. vestast í túninu framan við gömlu spítalabygginguna sem reist var á árunum 1925-1930.
Í forkönnuninni komu hins vegar í ljós leifar mannvirkis, steinhleðslur, í suðvesturhorni túnsins sem mögulega tengjast búsetu í Grænuborg og telur Forleifavernd óhjákvæmilegt að ráðast í frekari rannsóknir á svæðinu og fylgja steinhleðslunum sem fundust í forkönnuninni til að fá gleggri mynd af þeim mannvirkjum sem þær tilheyra.
Þá telur Fornleifavernd að grafa þurfi prufuholur með jöfnu millibili á túninu vestanverðu til að fá fullvissu um það hvort bæjarhús Grænuborgar liggi á milli þeirra svæða sem skoðuð voru í forkönnuninni, sem og hvort önnur merki mannvistar leynist þar undir yfirborði. Komi slíkt í ljós er það álit stofnunarinnar að rannsaka þurfi það að fullu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. ágúst 2011, Innlent Fornleifarannsóknir við Landspítalann
- Fimmtudagur, 19. maí 2011, Innlent Leita að fornleifum við Landspítala
- Fimmtudagur, 10. febrúar 2011, Innlent Vilja fornleifaskráningu á Ströndum
- Föstudagur, 13. apríl 2012, Innlent Hátt í hundrað fornmunir
- Föstudagur, 1. apríl 2011, Innlent Fornleifar í Landeyjahöfn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































