Ginflöskumálið afar óvenjulegt

Vín á boðstólum í Fríhöfninni í Keflavík. stækka

Vín á boðstólum í Fríhöfninni í Keflavík. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Það sem er kannski óvenjulegt við málið er að það er fellt niður eftir að aðalmeðferð er hafin,“ segir Bjarni Þór Óskarsson lögmaður um niðurstöðu í óvenjulegu dómsmáli sem varðar tollfrjálst áfengi, nánar tiltekið lítra af gini.

„Ég hef enga tölfræði til að styðjast við en held ég geti fullyrt að þetta sé sjaldgæft mál. Ákæruvaldið fer helst ekki af stað með mál nema að það sé nokkuð visst um niðurstöðu. Ég kann ekki skýringu á því hvers vegna ákæruvaldið fer ekki áfram með málið. Lögfræðingar þess hljóta að hafa ályktað að þeir væru ekki með gott mál í höndum,“ segir Bjarni Þór.

Aðdragandi málsins er sá að hinn ákærði, ferðamaður sem kom til landsins í september 2008, var með tvær eins lítra flöskur af sterku áfengi í fórum sínum þegar hann var stöðvaður af tollinum í Keflavík.

Samkvæmt lögum má að hámarki koma með lítra af sterku áfengi og svo hálfan kassa af bjór eða eina flösku af léttvíni með. Kröfðu tollverðir manninn um greiðslu sektar, eða skatta, af ginflösku á grundvelli þessara takmarkana og neitaði hann þá að verða við því.


Skattlagningarheimildin umdeild

Bjarni Þór segir fjármálaráðherra hafa sett reglur um hámark magns þess áfengis sem taka má með inn í landið. Heimild tollayfirvalda til að taka sér skattlagningarvald á grundvelli þessara laga sé hins vegar umdeild.

„Lögin frá Alþingi sögðu að ráðherra ætti að takmarka magn áfengis sem einstaklingar máttu flytja með sér til landsins og hann gerði það með reglugerð. Gallinn er auðvitað í lögunum frá Alþingi sem framselur hið meinta skattlagningarvald sem greina má um.

Framkvæmdavaldið gerir auðvitað það sem löggjafarvaldið reiknar með og ákæruvaldið síðan í kjölfarið. Lögregluvaldið framfylgir auðvitað þeim lögum sem eru sett.“

Varðar lög frá árinu 2005 

En hvers vegna þurfti maðurinn ekki að greiða sekt í ljósi þess að takmörkun er lögð við flutningi ferðamanna á áfengi til landsins?

„Það sem málið gengur út er að lögin, sem eru frá 2005, gerðu ráð fyrir að innflutningur ferðamanna, þar með talið á áfengi, væri tollfrjáls, upp að því hámarki sem fjármálaráðherra ákveddi í reglugerð. Sú hámörkun í reglugerð var óheimilt framsal á skattlagningarvaldi, að áliti Umboðsmanns Alþingis og þessa ágæta ferðamanns sem neitaði að greiða sektina.

Þar af leiðandi mátti hann koma með tvær eða 12 flöskur til landsins þess vegna, án þess að krefja mætti hann um sektargreiðslu, eða tölvur eða hvaða annan varning. Þetta á ekki aðeins við áfengi heldur hvaða varning sem er. Í kjölfar niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis var lögunum breytt í desember 2008, þremur mánuðum eftir að málið kom upp, og þessu snúið við á þann veg, að í stað þess að veita ráðherra þessa heimild með reglugerð hafa lögin nú að geyma þessa takmörkun.

Um það snýst málið. Fram til þess að lögunum er breytt – miðað við það sem við höldum fram – var óheimilt að takmarka þetta og því studdust þær sektir sem lagðar voru á áfengi eða annan varning ekki við lög.“

Eiga ferðamenn rétt á skaðabótum? 

Bjarni Þór kveðst ekki sannfærður um að málið hafi fordæmisgildi.

 „Ef til vill gefur þessi afgreiðsla tilefni til að það fólk sem greiða þurfti sektir geti endurkrafið ríkið um sektina, að minnsta kosti, og jafnvel fengið skaðabætur þess vegna. Með því að ákæran var felld niður liggur hins vegar ekki fyrir dómur og þar af leiðandi er erfitt að tala beinlínis um fordæmi," segir Bjarni Þór.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kvistir
Kvistir Sérsmíðaðir kvistir á þök. Uppsetning tekur ...
Hreinræktaðir schäfer hvolpar til sölu
Erum með hvolpa undan margverðlaunuðum foreldrum ,mjaðma-og olnbogalos frí .Hvol...
Sorptunnugrind
Sorptunnan lítur mun betur út og þú getur fest grindina við vegg eða stétt þanni...
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...