Rannsóknin vís óvissuferð
Yfirheyrslur í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á lánveitingum Vátryggingafélags Íslands (VÍS) hafa staðið yfir í allan dag. Í gær var innan við tugur yfirheyrður en fleiri bættust í þann hóp í dag. „Þetta er alltaf óvissuferð,“ segir sérstakur saksóknari um rannsóknir embættisins.
Embættið framkvæmdi húsleit í höfuðstöðvum VÍS í gær en engar húsleitir hafa verið gerðar í dag.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir í samtali við mbl.is að hann geti lítið tjá sig um gang rannsóknarinnar sem sé á frumstigi. Aðspurður segir hann að um mörg tilvik sé að ræða og því sé að mörgu að hyggja við rannsókn málsins.
Yfirheyrslur hafa staðið yfir í allan dag en óljóst er á þessari stundu hvenær þeim muni ljúka. Ólafur segir að menn taki sér þann tíma sem þeir þurfi.
Sem fyrr segir var gerð húsleit í höfuðstöðvum VÍS og á öðrum stað á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þá var hópur manna, innan við tugur, yfirheyrður í gær, ýmist sem vitni eða grunaðir í málinu. Ólafur segir að fleiri hafi bæst við í dag en vill hins vegar ekki greina frá fjöldanum.Meðal þeirra sem voru handteknir og yfirheyrðir í gær eru, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður og einn af aðaleigendum Exista, móðurfélags VÍS, Erlendur Hjaltason, fyrrverandi forstjóri Exista, sem einnig sat í stjórn VÍS, og Guðmundur Örn Gunnarsson, fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins.
Sérstakur saksóknari rannsakar meðal annars fjölda lánveitinga VÍS til ýmissa félaga og aðila á árunum 2007 til 2009. Fjármálaeftirlitið kærði málið til saksóknara að lokinni eigin athugun. Fram hefur komið að lánveitingarnar voru meðal annars til eigenda og starfsmanna VÍS. Guðmundur Örn Gunnarsson, sem var forstjóri VÍS frá 2008, lét af störfum í síðustu viku í kjölfar úttektar Fjármálaeftirlitsins.Grunur er um brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga við ráðstöfun á fjármunum tryggingafélagsins og brot á lögum um vátryggingastarfsemi. Ólafur hefur sagt að um verulega fjárhagslega hagsmuni sé að tefla, þeir hlaupi á milljörðum, og fjölda tilvika.
Bloggað um fréttina
-
Jón Baldur L'Orange Allir vita hverjir eru sekir, en óvissa um hvort sekt ...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 31. maí 2011, Innlent Fyrrum stjórnarmenn yfirheyrðir
- Þriðjudagur, 31. maí 2011, Innlent Fjórir fluttir í skýrslutöku
- Þriðjudagur, 31. maí 2011, Innlent Húsleit hjá VÍS
- Fimmtudagur, 1. desember 2011, Innlent Allir kæra gæsluvarðhaldið
- Laugardagur, 3. desember 2011, Innlent Áframhaldandi yfirheyrslur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































