Hélt að farið hefði verið að tilmælum um launalækkun
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að hún hafi ekki vitað annað en að farið væri eftir þeim tilmælum, sem voru send ráðuneytum og stofnunum árið 2009, að öll laun í stjórnsýslunni yfir 400 þúsund krónur yrðu lækkuð.
Sömuleiðis sagðist Jóhanna ekki hafa vitað annað en að samræmi væri milli ráðuneyta og ríkisstofnana í þessum aðgerðum. Væri það ekki raunin sé það bagalegt og ekki í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Full ástæða sé til að skoða hvaða skýringar væru á þessu og hvernig þetta hafi verið framkvæmt.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vísaði til könnunar Ríkisendurskoðunar, sem hefði leitt í ljós að fjölmargar ríkisstofnanir urðu ekki við tilmælum ríkisstjórnarinnar. Hafi Ríkisendurskoðun gagnrýnt þessa málsmeðferð harkalega.
Þá sagði Höskuldur, að í uppgjöri ríkissjóðs fyrir apríl komi í ljós, að laun framkvæmdavaldsins séu komin 1,5 milljarða fram úr áætlun. Þetta séu gríðarháar tölur. Spurði Höskuldur hvort Jóhanna gæti útskýrt þetta launaskrið innan stjórnsýslunnar og hvort hún myndi efla Alþingi til móts við það sem framkvæmdavaldið virtist vera að taka sér sjálft.
Jóhanna sagði að full ástæða væri að skoða þetta og leita skýringa á því hvort aðgerðirnar hafi ekki verið samræmdar og gengið yfir allt opinbera kerfið, eins og til stóð, og hverjar séu helstu skýringar á þessu launaskriðinu.
Höskuldur sagði ansi bagalegt, ef ekki skammar, að forsætisráðherra skuli koma af fjöllum um það hvernig tekist hefði til með framkvæmd eigin tilmæla.
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Ríki í ríkinu -
Sigurður Jónsson Hvers vegna veit Jóhanna aldrei neitt? -
Haraldur Haraldsson Hélt að farið hefði verið að tilmælum um launalækkun//Kom af ... -
Haukur Gunnarsson Veit þetta lið aldrei neitt, draga það fyrir Landsdóm. -
Þráinn Jökull Elísson Sjálftakan á fullu. -
Gunnar Heiðarsson Já hélstu það já ?
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. febrúar 2011, Innlent Mun ekki samþykkja Icesave
- Fimmtudagur, 16. febrúar 2012, Innlent Vildi vita hverjir ættu bankana
- Fimmtudagur, 10. mars 2011, Innlent Jóhanna biður um launalækkun
- Fimmtudagur, 16. febrúar 2012, Innlent Rætt um stöðu krónunnar á Alþingi
- Föstudagur, 17. febrúar 2012, Innlent Launin skert um 5,2 milljónir frá hruni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































