Kvótakerfi í umræðum um kvóta
Ólöf Nordal og Ásbjörn Óttarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndu Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra harkalega á Alþingi í dag, fyrir að hafa lagt frumvarp sitt til nýrra heildarlaga um stjórn fiskveiða fram og mælt fyrir því, áður en ljóst væri hver hagræn áhrif frumvarpsins væru.
Jón sagðist þó leggja mikla áherslu á niðurstöður hagfræðilegu úttektarinnar. Sagði hann að engum dytti í hug að hrinda í framkvæmd einhverju sem hefði alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir sjávarútveginn í landinu.
Hins vegar væri mjög mikilvægt að með óyggjandi hætti yrði tryggt að auðlindin yrði í eigu þjóðarinnar og ráðstöfun hennar sömuleiðis.
„Ég flyt það og mér finnst það bara gott að flytja það," sagði Jón um flutning frumvarpsins.
Í kjölfarið kom upp talsverð umræða um fundarstjórn forseta. Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki, sagði að svo virtist sem einhvers konar kvótakerfi hefði verið innleitt í andsvörum og sagði hún að farið hefði verið eftir flokkum en ekki ,,fyrstur kemur fyrstur fær" eins og venja væri í þinginu.
Krafðist Ragnheiður þess að forsætisráðherra og fjármálaráðherra yrðu kölluð til þings og að þau yrðu viðstödd alla umræðuna.
Gunnar Bragi Sveinsson tók einnig til máls um fundarstjórn forseta og sagði mjög mikilvægt að ráðherrarnir Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon yrðu við umræðuna, þar sem fáir hefðu tjáð sig jafnmikið um þau mál og Jóhanna. Því ætti Jóhanna að hlýða á þingmenn og hvatti hann forseta til að flýta fyrir því að ráðherrarnir mættu í þingsal.
Sagði Kristján Möller, sem situr á forsetastóli, að skilaboðum um þetta hefði verið komið á framfæri.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gerði athugasemdir við að ekki hefðu allir komist að í andsvörum. Sagði hann að Jón hefði lýst því yfir í andsvari við Ólöfu Nordal sagt að hagfræðilega úttektin á áhrifum kvótamálsins myndi ekki hafa úrslitaáhrif á það, hver aðalatriði frumvarpsins yrðu. Bað hann ráðherrann um að taka til andsvara undir umræðum um fundarstjórn forseta til að útskýra þessi ummæli sín.
Pétur H. Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins bað einnig um það að velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson yrði viðstaddur umræðuna líka, þar sem velferð gæti ekki ríkt í landi þar sem atvinnulíf stæði ekki styrkum fótum. Sagði hann að fórna ætti hagkvæmni og atvinnulífi fyrir „einhverja rómantík". Vildi hann því að velferðarráðherra yrði viðstaddur, til að tala máli þeirra sem nytu þjónustu velferðarkerfisins.
Að lokum varð mikil umræða um hæfi Ásbjörns Óttarssonar til að fjalla um sjávarútvegsmál, þar sem hann ætti sjálfur kvóta og hefði beina fjárhagslega hagsmuni af málinu. Þór Saari vakti máls á þessu upphaflega og vöktu þau ummæli hans hörð viðbrögð margra þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
Jón Bjarnason svaraði því svo til að Sigmundur Davíð hefði ekki vitnað rétt í sig. Hann hefði sagt að grunnatriðin sem tryggja ættu óskoraða þjóðareign á sjávarauðlindinni væru aðalmálið. Hagfræðiúttektin gæti haft áhrif á útfærslu á þessu. Þetta þyrfti að koma fram svo orð hans yrðu ekki rangtúlkuð frekar.





































