Styðja áherslur Líbíska þjóðarráðsins

Össur Skarphéðinsson og Guma El-Gamaty.
Össur Skarphéðinsson og Guma El-Gamaty.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að íslensk stjórnvöld styðji að fullu þau gildi og áherslur, sem fulltrúi Líbíska þjóðarráðsins kynnti fyrir honum í dag.

Guma El-Gamaty, sérstakur fulltrúi þjóðarráðsins gagnvart breskum stjórnvöldum, er staddur hér á landi og átti fund með Össuri og íslenskum þingmönnum. 

Utanríkisráðuneytið segir, að á fundinum hafi El-Gamaty kynnt stöðu þjóðarráðsins, áherslur þess og framtíðarsýn. Fram hafi komið, að bandalag uppreisnarmanna sé að eflast, meðal annars vegna alþjóðlegs stuðnings við þjóðarráðið og með árangursríkum aðgerðum Atlantshafsbandalagsins við að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Hafi aðgerðir NATO, og áður nokkurra aðildarríkja þess, skipt sköpum við að takmarka manntjón vegna árása Líbíuhers á eigin borgara. Að mati þjóðarráðsins sé einnig ljóst að Múammar Gaddafi, einræðisherra Líbíu, verði að hverfa frá völdum svo tryggja megi framtíð landsins.

Össur reifaði afstöðu íslenskra stjórnvalda og ítrekaði stuðning við  ályktanir öryggisráðsins. Einnig lagði utanríkisráðherra sérstaka áherslu á að Gaddafi verði dreginn fyrir alþjóða glæpadómstólinn.    

„Við styðjum að fullu þau gildi og áherslur sem fulltrúi Líbíska þjóðarráðsins hefur kynnt á fundi okkar í dag, sem fela í sér áherslu á lýðræðisþróun, mannréttindi, jafnrétti, málfrelsi og bætta stjórnarhætti. Líbíska þjóðin á að fá að kjósa sér leiðtoga í lýðræðislegum kosningum og byggja upp samfélag þar sem frelsi og manngildi eru höfð að leiðarljósi. Við styðjum baráttu þjóðarráðsins fyrir þessum markmiðum,“ er haft eftir Össuri á vef utanríkisráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert