Nýjar tillögur um trúmál
Endurskoðuð tillaga um skólastarf og trúar- og lífsskoðunarmál var afgreidd til borgarráðs á fundi mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar í hádeginu í dag. Upphaflegu tillögurnar sem lagðar voru fram síðastliðið í haust voru umdeildar og sagði Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, þær meðal annars „vega að trú, siðum og hefðum“.
Margrét Sverrisdóttir, formaður mannréttindaráðs, segir ýmsar breytingar hafa verið gerðar á tillögunum. „Við sendum tillögurnar til fagráða borgarinnar síðastliðið haust og höfum verið að bíða eftir umsögnum frá þeim. Við tókum fullt tillit til athugasemda og höfum tekið af öll tvímæli í þessum breyttu tillögum um að ætlunin var ekki að hætta með jólasöngva og helgileiki.“
Ekki ætlunin að breyta námsskrá
Margrét segir ennfremur rétt að ítreka að aldrei hafi ætlunin verið að breyta námsskrá í kristnum fræðum eða kennslu í þeim. „Ýmsir reyndu að snúa þessu þannig að tillögurnar fælu í sér atlögu að kristinni trú. Það var alrangt og í tillögunum er kveðið á um heimsóknir í kirkjur og á helgistaði trúarfélaga og jafnframt heimsóknir frá fulltrúum trúar- og lífsskoðunarhópa í skóla. Slíkar heimsóknir eru liður í trúarbragðafræðslu. Hugsunin var aðeins að takmarka boðun trúar- og lífsskoðunarfélaga á skólatíma.“
Hún bætir við að tillögurnar séu hugsaðar til reynslu í skólum í Reykjavík í tvö ár frá og með næsta skólaári. „Þessar tillögur hafa verið endurbættar með því að taka fullt tillit til athugasemda og umsagna fagráða og við höfum leitast við að skýra og bæta við þær ákvæðum um að það er og var aldrei hugsunin að banna litlu-jólin eða aðrar hefðir sem tengjast skemmtunum í skólum.“
Í tillögunum er lagt til að trúar- og lífsskoðunarfélögum verði bannað að stunda starfsemi innan veggja skólastofnana og ennfremur verði lagt bann við því að dreifa „boðandi“ efni. „Foreldrum verða hins vegar áfram kynntir hvers kyns möguleikar í æskulýðsstarfi og þar á meðal á vegum kirkjunnar,“ segir Margrét.
Hún segir ennfremur að tillögurnar hafi fengið góð viðbrögð í skólasamfélaginu. „Okkur lá ekkert á og tókum okkur tíma í að fara yfir allar athugasemdir og tillögurnar hafa batnað með þessari málsmeðferð.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 6. júní 2011, Innlent „Vinnubrögð með ólíkindum“
- Föstudagur, 10. júní 2011, Innlent Leikskólabörn áfram í kirkjur
- Þriðjudagur, 7. júní 2011, Innlent „Illa unnin og tilefnislaus“
- Fimmtudagur, 6. október 2011, Innlent Trúin í skammarkrókinn?
- Þriðjudagur, 26. október 2010, Innlent Enn óljóst með samskipti trúarhópa við skólabörn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































