„Fráleitt að kalla þetta samráð“
„Það er með ólíkindum að meirihluti mannréttindaráðs leiti ekki eftir samráði við borgarbúa og ekki síst þá sem þekkja málið best og standa því næst, t.d. trúfélög, foreldra, skólastjórnendur og þjóðkirkjuna sem hefðu getað leiðbeint meirihluta mannréttindaráðs í gegnum þessa tillögugerð,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, um endurskoðaðar tillögur mannréttindaráðs um skólastarf í Reykjavík og trúar- og lífsskoðunarmál.
Tillögurnar voru samþykktar til borgarráðs á fundi mannréttindaráðs í dag. Í bókun frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks voru vinnubrögð meirihluta mannréttindaráðs gagnrýnd harðlega.
Margrét Sverrisdóttir, formaður mannréttindaráðs, sagði í samtali við mbl.is í dag að í endurskoðuðum tillögum hefði verið tekið tillit til þeirra athugasemda sem ráðinu hefðu borist um tillögurnar.
„Meirihluti mannréttindaráðs reynir nú að halda því fram að málið hafi verið unnið í mikilli sátt og samlyndi. Samráðið sem haft var í þessu máli var hins vegar þannig að tillögurnar voru sendar af meirihluta mannréttindaráðs til annarra pólitískra fagráða í borginni þar sem vopnabræður þeirra í pólitík eiga sæti og þeir komu ekki með neinar tillögur af gagni. Það er fráleitt að kalla þetta samráð af einhverju tagi,“ segir Júlíus Vífill.
Júlíus Vífill segir jafnframt sárt að sjá ráð, sem tryggja á gagnkvæma virðingu, virða ekki skoðanir fólks og andstöðu.
„Það hefði átt að vinna þetta mál af meiri yfirvegun og gagnkvæmri virðingu. Þegar trúmál eru annars vegar þarf að gæta að því að sýna öllum sem að málinu koma umburðarlyndi.“
Júlíus Vífill segir ennfremur að miðstýring hæfi þessum málaflokki afar illa. „Staðreyndin er sú að grunnskólar í Reykjavík eru mjög ólíkir og samsetning nemenda einnig. Miðlægar reglur sem endurspegla forsjárhyggju meirihluta mannréttindaráðs eiga alls ekki við þennan málaflokk heldur eigum við að treysta skólastjórum, kennurum og foreldrum til að vinna þessi mál eins og hefur verið gert til þessa með mjög farsælum hætti.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 7. júní 2011, Innlent „Illa unnin og tilefnislaus“
- Mánudagur, 6. júní 2011, Innlent Nýjar tillögur um trúmál
- Laugardagur, 18. febrúar 2012, Innlent „67% hækkun út úr kortinu“
- Fimmtudagur, 9. september 2010, Innlent Vill skipta um formann mannréttindaráðs
- Þriðjudagur, 23. nóvember 2010, Innlent Taka mið af Siðmennt og kirkju
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































