Frumvörpin boði óhagkvæmni

Skýrsla sjávarútvegsteymis Íslandsbanka er afar neikvæð í garð fiskveiðistjórnunarfrumvarpa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. stækka

Skýrsla sjávarútvegsteymis Íslandsbanka er afar neikvæð í garð fiskveiðistjórnunarfrumvarpa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Golli

Flestar þær breytingar sem felast í fiskveiðistjórnunarfrumvörpunum, sem nú eru til umræðu á Alþingi, hafa neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja. Þetta er niðurstaða skýrslu sem sjávarútvegsteymi Íslandsbanka tók saman um frumvörpin.

Í skýrslunni varar Íslandsbanki við neikvæðum áhrifum verði frumvörpin samþykkt og segir að sjávarútvegurinn verði óhagkvæmari, arðsemi fyrirtækja muni minnka, hvati til fjárfestinga dragist saman auk þess sem samkeppnisstaða íslensk sjávarútvegs á mörkuðum erlendis muni veikjast.

Reksturinn aldrei gengið betur

Í skýrslunni segir að rekstur sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi gangi almennt vel og hann hafi batnað mikið síðastliðna þrjá áratugi. Sjávarútvegur leggi nú til um 40 prósent af útflutningsverðmætum þjóðarinnar og verðmæti útfluttra sjávarafurða á árið 2010 hafi numið 220 milljörðum sem sé það mesta hingað til. Sjávarútvegur leggi auk þess til um 10 prósent af vergri landsframleiðslu hvert ár.

Frumvörpin fela í sér að gerðir verði nýtingarsamningar við aðila þar sem veittur er tímabundinn réttur til afnota eða hagnýtingar á auðlindinni gegn gjaldi. íslandsbanki segir að þetta muni hafa þau áhrif í för með sér meiri óvissu því fyrirtækin geti ekki gengið að aflaverðmætum vísum til framtíðar. Fyrirhugaður nýtingartími sé of stuttur, en gert er ráð fyrir 15 árum. Íslandsbanki leggur frekar til að horft yrði til lengri tíma svo sem nýtingarréttur til 30 eða 40 ára.

Þá segir í skýrslu bankans að með skiptingu aflaheimilda samkvæmt frumvörpunum sé í raun verið að færa heimildirnar frá núverandi útgerðum til annarra aðila. Það muni veikja rekstrargrundvöll þeirra fyrirtækja sem nú eru til staðar. Jafnframt stuðli tilfærslan að fjölgun útgerðaraðila í greininni sem auki hættuna á offjárfestingum.

Frumvörpin geri einnig ráð fyrir auknum opinberum afskiptum að sjávarútvegi sem bankinn segir óæskilega þróun í viðskiptalífinu og dragi meðal annars úr hagkvæmni.

Áhrif hækkunar veiðigjalds mun auka álögur á fyrirtækin að mati Íslandsbanka. Gert er ráð fyrir hækkun úr 9,5% í 16,2% á næsta fiskveiðiári.

Frumvörpin gera ráð fyrir banni við framsali aflaheimilda. Íslandsbanki segir slíkt til þess fallið að dragar úr hagkvæmni og koma í veg fyrir nýliðun. Framsalið hafi verið einn af drifkröftum hagræðingar í sjávarútvegi síðustu áratugi. Þá muni bann við kvaðabindingu aflaheimilda koma mjög niður á lánsfjármögnunarmöguleikum sjávarútvegsfyrirtækja og gera fjárfestingar erfiðari því nú þegar sé veðsetning aflaheimilda bönnuð.

Verðmæti útfluttra sjávarafurða á árið 2010 nam 220 milljörðum sem er það mesta hingað til.

Verðmæti útfluttra sjávarafurða á árið 2010 nam 220 milljörðum sem er það mesta hingað til. mbl.is/Kristján

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Aliner Expedition Nýskr 3/2008 Hlaðið aukabúnaði
Sólarsella Loftpúðafjöðrun, Nýtt fortjald, grjótgrind, 2 gaskútar, 2 rafgeymar. ...
3 Silky Terrier strákar til sölu
Tilbúnir til afhendingar. Heilsufarssk., örmerktir og fullbólusettir. Ættbókarf...
Sparibaukurinn er til sölu - Peugeot 206 HDI árg.2006
Þessi bíll notar disel olíu, hann eyðir mjög litlu 4-5 lítrum á hundraðið. Hann ...
Palomino fellihýsi með loftpúðafjöðrun
Til sölu Palomino 4102 árg. 2008 fellihýsi með vandaðri loftpúðafjöðrun , loftdæ...
 
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...