„Tillagan illa unnin og tilefnislaus“
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins segir tillögu meirihluta mannréttindaráðs um samskipti leik- og grunnskóla og frístundaheimila borgarinnar við trúar og lífsskoðunarfélög verið setta fram án nokkurs sjáanlegs tilefnis og án nokkurs faglegs undirbúnings.
Tillagan sé illa unnin og vandlega haldið innan veggja borgarkerfisins. Öllu samstarfi við þá fjölmörgu sem hafi tjáð sig um málið hafi verið hafnað. Sjálfstæðismenn segja góða sátt hafa ríkt um samskipti skóla og trúar og lífskoðunarfélaga og því væri augljóslega engin ástæða til að þvinga fram breytingar með óskiljanlegum hraða í gegnum borgarkerfið og án alls utanaðkomandi samráðs.
Sjálfstæðismenn segja vinnubrögð ráðsins hafa dregið úr trúverðugleika þess og virðingu meðal almennings. Þau hafi kallað fram umræðu um að að baki búi aðrar hvatir en þær sem byggja á réttlæti og sanngirni.
Í tilkynningu borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins segir svo:
„Í skýrslu Menntasviðs frá árinu 2007 um samstarf kirkju og skóla stendur: „Starfshópurinn velti fyrir sér í hverju samstarf milli leik- og grunnskóla og trúar- og lífsskoðunarhópa gæti verið fólgið. Aðalatriði að mati hópsins er eins og fram kemur í tillögunum að samstarfið byggi á skilningi og virðingu fyrir hlutverki hvors annars. Hvernig samstarfið mótast er í valdi hvers skóla (leik- og grunn) og þeirra stofnana sem þeir eiga samstarf við“. Það er með öðrum orðum ekki mælt með miðstýringu heldur að mið sé tekið af aðstæðum í hverjum skóla enda eru skólar borgarinnar margbreytilegir og samsetning nemenda ólík. Það er því augljóslega rangt sem haldið er fram í tillögu meirihluta mannréttindaráðs að lagt sé til í umræddri skýrslu að settar verði miðlægar reglur um samskipti skóla og frístundaheimila við trúar- og lífsskoðunarfélög.“
„Með tillögunni er verið að gera viðurkennt félagsstarf barna og unglinga sem fram fer á vegum trúar og lífsskoðunarhópa tortryggilegt. Þetta starf stendur fjölskyldum til boða endurgjaldslaustog þúsundir barna og unglinga sem njóta góðs af á hverju ári. Allir sem bjóða börnum upp á uppbyggilegt og skipulagt starf eiga að sitja við sama borð. Gagnkvæm virðing þarf að ríkja í samstarfi borgarstofnana við alla þá sem koma að þjónustu og tómstundatilboðum til borgarbúa.Það er þó ekki skoðun mannréttindaráðs sem jaðarsetur tómstundastarf unglinga á vegum trúar og lífsskoðunarhópa.“
„Fulltrúar Samfylkingar, Besta flokks og Vinstri grænna í mannréttindaráði sendu tillögur sínar til umsagnar velferðarráðs, íþrótta- og tómstundaráðs og menntaráðs. Ábendingum um að taka upp víðtækt samráð var hafnað. Umsagnir fagráðanna þriggja voru fyrirsjánalegar og fyrirfram gefnar. Sú leið sem valin var endurspeglar ekki virðingu fyrir mannréttindum. Hefði verið sannur vilji til þess að fjalla fordómalaust um samskipti skóla og trúfélaga og lífsskoðunarhópa hefði augljóslega átt að taka upp samvinnu við foreldra, skóla, nemendur, fræðimenn, þjóðkirkju og trúar- og lífsskoðunarfélög. Andstaða borgarbúa við vinnubrögð af þessu tagi hefur komið skýrt fram en ekki er sjáanlegur vilji til að virða skoðanir þeirra.“





































