Heitar umræður um aðgerðir í Líbíu
Heitar umræður fóru fram á Alþingi í dag um aðgerðir Atlantshafsbandalagsins (Nató) í Líbíu. Formaður Sjálfstæðisflokks hóf umræðuna sem snerist að mestu um afstöðu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs eða afstöðuleysi innan ríkisstjórnarinnar.
Í upphafsræðunni sagði Bjarni Benediktsson að ljóst væri á málsmeðferðinni í þessu máli, að Samfylkingin hafi sína hentisemi í ríkisstjórninni og þingmenn VG láti sér í léttu rúmi liggja að vinna með ríkisstjórn sem styðji „hernaðarbrölt“ sem VG berst svo gegn.
Össur Skarphéðinssin, utanríkisráðherra, og Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sögðust bæði telja að til umræðunnar hefði verið stofnað til að koma höggi á Vinstri græna og stefnu þeirra. Össur sagðist hafa haft fullt umboð til að taka ákvörðun í nafni Íslands en tók jafnframt fram, að afstaða Vinstri grænna hefði ávallt verið ljós. Hins vegar hafi verið meirihluti fyrir því á Alþingi að styðja aðgerðir Nató.
Þingmenn Vinstri grænna létu einnig til sín taka í umræðunni. Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði ljóst að VG væri á móti hernaðarbandalögum og það byggi á friðarstefnu flokksins. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sagði, að það hefði verið fagnaðarefni ef ríkisstjórnin hefði ekki verið samstiga í þessu máli og frekar klofin. Hún sagði að það hefði verið Íslandi til sóma ef ráðherrar VG hefðu sagt sína skoðun í málinu.
„Innanríkisráðherra ekki friðarins maður“
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, óskaði VG til hamingju og sagði niðurlægingu flokksins algjöra. „Fyrst voru þau ekki spurð og svo voru þau spurð og sögðust vera á móti en samstarfsflokknum var alveg sama.“ Hún sagði stefnu VG engu máli skipta, Samfylkingin fái öllu sínu fram og kjósendur VG geti fagnað því að hafa tryggt aðildarviðræður að ESB og aðgerðir í Líbíu.
Einnig tók til máls Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokks, sem sagði stefnu og stöðu VG hlægilega. Verið væri að varpa sprengjum í Líbíu í boði ríkisstjórnarinnar og í boði VG. Hann sagði Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra, sem þanið hafi sig sem boðbera friðar hafa kosið að stöðva málið ekki í ríkisstjórn. „Innanríkisráðherra er ekki friðarins maður. Hann lagði að veði friðarboðskapinn,“ sagði Gunnar Bragi og spurði að lokum hvað Ögmundur hefði fengið að launum fyrir að þegja um árásina í Líbíu.
Ögmundur var í salnum en tók ekki þátt í umræðunni.





































