Draumur um selinn Díon bíður enn
Þrír nýir kópar svamla nú um í selalaug Fjölskyldu- og húsdýragarðsins en sá nýjasti kom í heiminn um helgina. Hafa nú allar þrjár urturnar í garðinum kæpt en það er nokkuð óvenjulegt því yfirleitt gengur illa að fá seli til að fjölga sér í dýragörðum.
„Við erum dálítið í sérflokki í þessum dýragarði vegna þess að yfirleitt gengur illa að láta seli fjölga sér í dýragörðum en það er alveg árvisst hér. Allar urturnar þrjár eru með kópum ár eftir ár. Við erum svolítið stolt af því,“ segir Hilmar Össurarson, dýrahirðir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Hann segir kópana vinsæla hjá gestum garðsins. „Þetta er líflegt ungviði. Þeir fara að synda nokkra klukkustunda gamlir og eru yfirleitt mjög hraustir og afskaplega farsæl dýr.“
Ekki hefur verið venjan að nefna kópana þar sem þeir staldri stutt við í garðinum þó að gestir geri það gjarnan óformlega. Því verður sá draumur íslenskra aðdáenda kanadísku söngkonunnar Celine Dion að landsmenn geti farið í Húsdýragarðinn til að sjá selinn Díon að bíða enn um sinn.
„Einhverjum datt sá brandari í hug einhvern tímann og það var fleiri en eitt sumar sem það nafn kom upp. Það var aldrei gert opinberlega nema á milli starfsfólks,“ segir Hilmar og hlær.
Myndir af kópunum á vef Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 21. ágúst 2011, Innlent Ærin ástæða til bjartsýni
- Sunnudagur, 8. apríl 2012, Innlent Hera lifir á leiklistinni í London
- Fimmtudagur, 21. október 2010, Innlent Flóknar kosningar til stjórnlagaþings
- Miðvikudagur, 23. júní 2010, Innlent Almenningur fengi reikninginn
- Miðvikudagur, 28. september 2011, Innlent Þjónustan verður æ dýrari fyrir sjúklinga
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































