Fangelsi fyrir manndráp af gáleysi
Hæstiréttur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í 9 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi en maðurinn ók ölvaður á Grindavíkurvegi árið 2009 og lenti í árekstri við annan bíl með þeim afleiðingum að ökumaður þess bíls, maður á fimmtugsaldri, lést.
Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi ekið bifreið norður Grindavíkurveg en hún hafi farið yfir á rangan vegarhelming miðað við akstursstefnu með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti þar í árekstri við bíl sem kom úr gagnstæðri átt.
Héraðsdómur Reykjaness hafði dæmt manninn í sex mánaða fangelsi, þar af fjóra mánuði skilorðsbundið, fyrir manndráp.
Við ákvörðun refsingar tók Hæstiréttur mið af því að með stórkostlega háskalegri háttsemi sinni hefði maðurinn valdið dauða annars manns, en maðurinn var bæði mjög ölvaður umrætt sinn og ók þar að auki án ökuréttinda.
Þá var litið til sakaferils hans en hann var sektaður og sviptur ökurétti í þrjú ár árið 2008 fyrir að aka ölvaður og án ökuréttar.
Fram kemur í dómnum, að maðurinn hafi sjálfur hlotið töluverða áverka við slysið en hafið aftur störf sem skipverji á fiskiskipi um ári síðar þótt einhver fjarvera frá starfi hafi orðið eftir það vegna afleiðinga slyssins. Þá hafi hann farið í áfengismeðferð í ágúst 2009 sem samkvæmt gögnum málsins hafi með einu fráviki gengið vel.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. júlí 2010, Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi
- Miðvikudagur, 16. nóvember 2011, Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi
- Laugardagur, 12. nóvember 2011, Innlent Hlaut dóm fyrir manndráp af gáleysi
- Þriðjudagur, 1. mars 2011, Innlent Sló mann með krikketkylfu
- Þriðjudagur, 26. apríl 2011, Innlent Þarf að bera helming tjónsins sjálfur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































