Alhvítt í Þingeyjarsýslu

Það snjóaði í kvöld þegar Völsungur og KF áttust við …
Það snjóaði í kvöld þegar Völsungur og KF áttust við í knattspyrnuleik á Húsavík í kvöld. mbl.is/Hafþór

Það snjóaði þegar Völsungur og KF áttust við á knattspyrnuvellinum á Húsavík í  kvöld.

Á vefnum 641.is kemur fram, að hálfgert vetrarveður hafi verið í Þingeyjarsýslum í kvöld og víða alhvít jörð, þar á meðal í Bárðardal og Mývatnssveit þar sem meðfylgjandi mynd var tekin.

Fram kemur á vefnum, að samkvæmt veðurspá fari hægt hlýnandi á morgun og vonandi verði þetta síðasti snjókomudagurinn á þessu sumri.

Hvít jörð var á Stöng í Mývatnssveit í kvöld.
Hvít jörð var á Stöng í Mývatnssveit í kvöld. mynd/Sigurbjörn Ásmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert