Fréttaskýring: „Vegið að afkomu fiskverkafólks“

Áhyggjur eru víða innan raða fiskverkafólks af áhrifum boðaðra kvótafrumvarpa á störf þess. stækka

Áhyggjur eru víða innan raða fiskverkafólks af áhrifum boðaðra kvótafrumvarpa á störf þess. mbl.is/Ernir

Morgunblaðið Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is

Fiskverkafólk víða um land hefur áhyggjur af afkomu sinni nái boðuð kvótafrumvörp fram að ganga. Hafa áhyggjur einnig verið uppi um að strandveiðar skapi ekki næg störf í landi, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær.

Áhyggjur fiskverkafólks koma vel fram í bréfisem Eyfirðingar sendu þingmönnum Norðausturkjördæmis í vikunni, ásamt um 240 undirskriftum. Með undirskriftalistunum var sent svohljóðandi bréf, er bar yfirskriftina „Fiskverkafólk í Eyjafirði óttast um framtíð sína“:

„Við undirrituð, starfsmenn í fiskvinnslu í Eyjafirði, mótmælum þeim ásetningi stjórnvalda að flytja störfin okkar til einhverra annarra með tilflutningi aflaheimilda frá einum stað til annars. Þannig er vegið að fjárhagslegri afkomu hundraða fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu.

Í þeim lagafrumvörpum um stjórn fiskveiða sem nú eru til umfjöllunar er fjallað ítarlega um fiskveiðar og hvernig þeim skuli háttað. Í engu er tekið tillit til þeirra sem starfa við fiskvinnslu í landi, enda kemur orðið fiskvinnsla aldrei fyrir í þessum lagatextum. Með því er áratuga reynslu okkar og þekkingu í fiskvinnslu enginn sómi sýndur. Fiskvinnslan verður færð aftur um áratugi með tilheyrandi verðmætatapi fyrir þjóðarbúið allt.“

Verði ekki stefnt í hættu

Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags í Þingeyjarsýslu, segist vel skilja áhyggjur fiskverkafólks í Eyjafirði, enda stór og öflug sjávarútvegsfyrirtæki þar í rekstri. Staðan sé þó mismunandi eftir byggðarlögum, víða sé mikið treyst á fiskmarkaðina og fiskurinn komi áfram til með að flytjast á milli landshluta. Þannig sé verið að flytja fisk burtu frá Húsavík til vinnslu annars staðar, um leið og fiskur komi þangað líka til vinnslu.

Stóra málið segir Aðalsteinn vera að kvótafrumvörpin stefni ekki rekstri alvöru sjávarútvegsfyrirtækja í hættu. Þau verði að búa við góð rekstrarskilyrði og hafa aðgang að kvóta til að láta vinnsluna ganga.

„Hjá þessum fyrirtækjum hefur starfsumhverfi fiskverkafólks verið hvað öruggast og hægt hefur verið að greiða fólki góð laun. Ég vona það að Alþingi Íslendinga fari ekki að stefna þessum fyrirtækjum í hættu. Það yrði mikill og stór skaði,“ segir Aðalsteinn.

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátasjómanna, segist ekki vera sammála því að strandveiðar skapi ekki næg störf í landi. Vissulega sé aflinn víða fluttur á milli landshluta eða úr landi í gámum en á smærri stöðum skapi strandveiðar heilmikla vinnu, þar sem ekkert hafi áður verið um að vera. Það muni t.d. heilmikið um útgerð 5-6 báta á sumum stöðum.

Þó að mikil eftirspurn sé eftir „flugfiski“ segir Örn að stórlega hafi dregið úr gámaútflutningi á fiski. Það þurfi líka að flaka þann afla fyrir útflutning.

Allar dollur dregnar á sjó

Auknar strandveiðar hafa haft það í för með sér að verð á smábátum hefur snarhækkað. Aðalsteinn Torfason, fasteigna- og skipasali hjá Híbýlum og skipum, segir dæmi um að bátar hafi margfaldast í veðri. Góð sala sé í öllum bátategundum, notuðum og nýjum.

„Það eru allar dollur dregnar á sjó,“ segir Aðalsteinn og telur engan vafa á að aukin eftirspurn í strandveiðarnar hafi haft þessi áhrif á verðið. Margskonar önnur afleidd störf hafi einnig skapast og haft áhrif á þessa þróun. „Það er verið að smíða báta úti um allt, varla nokkur sem flytur inn báta erlendis frá lengur. Nýsmíðin hefur breyst þannig að íburður hefur minnkað. Það er reynt að smíða þokkalega báta fyrir minni pening en áður. Sem dæmi eru keyptar uppgerðar vélar í staðinn fyrir nýjar og reynt að spara í tækjakosti,“ segir Aðalsteinn. Hægt er að fá þokkalegan smábát fyrir um sex milljónir króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Harley davidson 100ára afmælisútgáfa
Harley davidson Dyna glide(fxdvg wide 100ára afmælisútgáfa uppl 6624961...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
Stórt kvenreiðhjól 28" til sölu
Fallegt svart kvenreiðhjól til sölu Það er 28". 3 gíra með körfu Hannað fyrir ...
VOLVO S40
Er með til sölu VOLVO S40, keyrður 90.000 km, árgerð 2004, bensín, 2435 cc sla...
 
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...