Afhentu kirkjuþingi skýrslu
Rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar skilaði forsætisnefnd kirkjuþings í morgun skýrslu um starfshætti og viðbrögð kirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni, biskupi, um kynferðisbrot.
„Ég fagna því að þessari rannsókn er lokið og þessi rannsóknarskýrsla er nú komin fram,“ sagði Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings og formaður forsætisnefndar kirkjuþings, við mbl.is áður en rannsóknarnefndin kynnti skýrsluna formlega í Grensáskirkju í morgun.
Þeir Róbert Ragnar Spanó og Þorgeir Ingi Njálsson, sem skipa rannsóknarnefndina, ásamt Berglindi Guðmundsdóttur, afhentu Pétri Kr. Hafstein, Margréti Björnsdóttur og Magnúsi E. Kristjánssyni, sem sitja í forsætisnefnd kirkjuþings, skýrsluna í Grensáskirkju í morgun.
Rannsóknarnefndin átti að leggja mat á hvort um mistök, vanrækslu eða vísvitandi þöggun eða tilraun til þöggunar hafi verið að ræða af hálfu vígðra þjóna og starfsmanna kirkjunnar, eða annarra þeirra sem gegnt hafa trúnaðarstörfum í þágu kirkjunnar, eftir að ásakanir um kynferðisbrot voru komnar fram og hverjir kunni að bera ábyrgð á því.
Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan 10:30 þar sem efni skýrslunnar verður kynnt. Þá hefur kirkjuþingið verið kallað saman á þriðjudag til þess að ræða skýrslu rannsóknarnefndarinnar og taka ákvörðun um frekari aðgerðir sem nauðsynlegar kunna að vera. Pétur segir að gert sé ráð fyrir að þingið muni standa yfir í einn dag. Þar meti menn stöðuna og fari yfir efni skýrslunnar.
„Það var kirkjuþing, sem er æðsta stofnun í kirkjunni og er að meirihluta skipuð leikmönnum, sem ákvað það einum rómi á síðasta kirkjuþingi, að stofna til þessarar rannsóknar. Þess vegna fannst mér einboðið að kirkjuþingið sjálft þyrfti að koma saman strax og skýrslan lægi fyrir til þess að taka við efni hennar og vega og meta það sem þar kemur fram. Og eftir atvikum að setja í málefnanlegan farveg eitthvað af því sem ábendingar nefndarinnar kunna að lúta að,“ sagði Pétur.
Kirkjuþing kemur saman 14. júní nk. til að ræða og fara yfir niðurstöðurnar.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Afhentu kirkjuþingi skýrslu/ Maður er hissa að þessu skuli fram ...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 31. maí 2011, Innlent Niðurstöður kynntar 10. júní
- Miðvikudagur, 25. ágúst 2010, Innlent Boða rannsóknarnefnd
- Þriðjudagur, 14. júní 2011, Innlent Ber fullt traust til biskups
- Föstudagur, 10. júní 2011, Innlent Nýtist til að bæta starfshætti
- Laugardagur, 13. nóvember 2010, Innlent Kirkjan ræðir um rannsókn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































