Verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur
Verðlaunahafar og fulltrúar þeirra eru fyrir miðri mynd en fulltrúar í stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi standa yst sitt hvorum megin. Ljósmynd/HÍ
Sex nemendur í eðlisfræði og efnafræði við Háskóla Íslands fengu í dag verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi fyrir framúrskarandi árangur í BS-námi í greinunum tveimur. Verðlaunin nema 750 þúsund krónum á hvern nemanda og eru því með þeim veglegustu sem veitt eru háskólanemum hér á landi.
Verðlaunum var úthlutað fyrir námsárangur við brautskráningu árið 2009 og komu þau í hlut Þóreyjar Maríu Maríusdóttur fyrir eðlisfræði. Þá voru veitt tvenn verðlaun fyrir námsárangur við brautskráningu árið 2010. Þau hlutu Inga Rún Helgadóttir fyrir eðlisfræði og Katla Kristjánsdóttir fyrir efnafræði. Loks voru veitt þrenn verðlaun fyrir námsárangur við brautskráningu nú í vor. Þau hlutu Elvar Karl Bjarkason og Kristín Björg Arnardóttir fyrir eðlisfræði og Katrín Lilja Sigurðardóttir fyrir efnafræði.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2008 sem úthlutað er úr sjóðnum. Ekki var svigrúm til að veita verðlaun árin 2009 og 2010 en sjóðurinn stendur nú fjárhagslega mjög vel og því var ákveðið að verðlauna sex nemendur í ár.
„Ljóst er að hlutfallslega færri nemendur sækja háskólanám í eðlis- og efnafræði á Íslandi en í samanburðarlöndum okkar. Stuðningur Guðmundar við háskólanemendur í eðlis- og efnafræði er því sannarlega mikilvægt lóð á þá vogarskál að hvetja unga Íslendinga að sækja nám á þessum sviðum,“ segir í tilkynningu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 11. desember 2010, Innlent Bestu piparkökuhúsin verðlaunuð
- Fimmtudagur, 2. júní 2011, Innlent Dúx í MH með 9,91
- Þriðjudagur, 24. maí 2011, Innlent Fékk 10 í 38 áföngum
- Laugardagur, 11. júní 2011, Innlent Vísindastarfið aldrei öflugra
- Mánudagur, 23. maí 2011, Innlent Dúxaði í MK og keppir í crossfit
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































