Aukinn kostnaður á útgerðir

Almennt er hópurinn gagnrýninn á úthlutun aflamarks til annarra en núverandi aflahlutdeildarhafa. stækka

Almennt er hópurinn gagnrýninn á úthlutun aflamarks til annarra en núverandi aflahlutdeildarhafa. mbl.is/Ómar

 Hópur hagfræðinga sem vann álit fyrir sjávarútvegsráðherra telur að takmörkun á framsali og viðskiptum með aflaheimildir, bann við veðsetningu aflaheimilda og byggðasjónarmið við stjórnun fiskveiða hafi för með sér kostnað fyrir núverandi fyrirtæki í greininni.

Í byrjun apríl s.l. ákvað Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að fá sex aðila til að greina með hagrænum hætti frumvarp til breytinga á stjórn fiskveiða og fengu þeir um það bil tvo mánuði til verkesins. Nú hefur hann veitt veitt viðtöku greinargerð hópsins sem telur 120 síður. Greinargerðin er einnig unnin með hliðsjón af áliti starfshóps um endurskoðun á stjórn fiskveiða sem skilaði af sér síðastliðið haust.

Hópurinn styður aðrar forsendur við gjaldtöku í sjávarútvegi þar sem bæði yrði horft til heildarkostnaðar við fiskveiðistjórnunarkerfið og til arðsins af auðlindinni. Hópurinn bendir á að tvöföldum núverandi veiðigjald geti í sjálfu sér talist hófleg, en horfa verði til heildaráhrifa af öllum þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu.

Almennt er hópurinn gagnrýninn á úthlutun aflamarks til annarra en núverandi aflahlutdeildarhafa. Hópurinn varar við brottkasti og dregur þá ályktun út frá sögu smábátakerfanna að fara þurfi mjög varlega í breytingar eða aukningu á strandveiðinni, að því er segir í fréttatilkynningu frá landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu.

„Það er mat Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að skýrsla hópsins sé innlegg í umræðu þá sem nú fer fram vegna endurskoðunar laga um stjórn fiskveiða.

Hópurinn telur sérstakan kostnað við ýmis atriði eins og byggðatengingar, strandveiðar og fleira.

Að mati ráðherra er það pólitísk ákvörðun, en ekki eingöngu hagfræðileg, hvernig fiskveiðistjórnuninni er háttað og hvernig tekið er tillit til margháttaðra aðstæðna. Má hér sérstaklega nefna atvinnuöryggi íbúa í sjávarbyggðunum og ýmis jafnræðis- og mannréttindasjónarmið.

Ráðuneytið minnir hér að lokum á að sjálfbærar veiðar samanstanda af þremur meginstoðum þ.e.a.s. líffræðilegri, hagrænni og samfélagslegri sjálfbærni og þar þarf ákveðið jafnræði að ríkja,"segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

Í gær, 17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fleetwood Bayside 12 fet sem nýtt
Glæsilegt fellihýsi skráð 06/09 lítið notað. 2 gaskútar, sólarsella. grjótgrind,...
Slökkvitæki fyrir sumarbústaðinn
Vegna magninnkaupa bjóðum við nokkrar gerðir slökkvitækja á ótrúlegu verði í tak...
TILBOÐ TOYOTA LANDCRUSIER 90 VX FLOTT EINTAK 50 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFA
Er með flott eintak af 50 ára afmælisútgáfunni af Toyota Landcrusier 90 VX. Ekin...
Gott hjól á góðu verði
Til sölu Honda VTX1300R árg 2004 Góð dekk og nýlegir bremsuklossar. Akstur 26....
 
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...