Níutíu metrar af sögu
„Það verður hátíð, hvernig sem viðrar,“ segir Valdimar Jón Halldórsson, staðarhaldari á Hrafnseyri. Þar er allt að verða tilbúið fyrir Hrafnseyrarhátíð sem haldin er í dag en meira er í hana lagt en venjulega vegna þess að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta.
Meira að segja malarvegirnir í Arnarfirði og nágrenni hafa fengið andlitslyftingu. Sérstök nefnd hefur í fjögur ár undirbúið dagskrá afmælisársins. Settar hafa verið upp sýningar og efnt til málþinga til að minnast Jóns Sigurðssonar og starfs hans. Hápunkturinn er opnun nýrrar sýningar á Hrafnseyri við Arnarfjörð.
„Afmælisnefndin lagði áherslu á verkefni á Hrafnseyri og fer um helmingur þess fjármagns sem nefndin hefur úr að spila þangað,“ segir Björn G. Björnsson verkefnisstjóri. Afmælishaldið kostar alls um 149 milljónir kr. Hann segir að hugmyndin hafi verið að gera Hrafnseyri til góða þannig að staðurinn stæði jafnfætis öðrum mikilvægum stöðum í sögu og menningu þjóðarinnar.
Umgjörð sýningarinnar „Líf í þágu þjóðar“ er níutíu metra langur gegnsær veggur úr plexígleri sem grundvallast á hugmynd Basalt arkitekta sem valin var eftir samkeppni. Þar er komið fyrir myndum og upplýsingum um Jón Sigurðsson og einnig geta gestir fengið þar aðgang að ítarlegra margmiðlunarefni.„Jón Sigurðsson er flókið viðfangsefni. Við höfðum það að leiðarljósi að sýna manninn sjálfan, ekki stunda hetjudýrkun,“ segir Björn í umfjöllun um sýninguna í Morgunblaðinu í dag. Auk persónunnar er reynt að gera starfsferli hans skil, bæði vísindastörfum hans og stjórnmálaþátttöku. Þá er fjallað um þá tíma og það umhverfi sem hann er sprottinn úr.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 17. júní 2011, Innlent Menningarsetur á Hrafnseyri
- Miðvikudagur, 15. júní 2011, Innlent Strekkingurinn felldi pizzutjaldið
- Fimmtudagur, 17. júní 2010, Innlent Fjölmenni á Hrafnseyri
- Mánudagur, 17. október 2011, Innlent Leitar skýringa hjá Háskólanum
- Fimmtudagur, 30. desember 2010, Innlent Merking sett á styttu Jóns Sigurðssonar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































