Kröfu vísað frá Hæstarétti
Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu verjanda manns, sem er ákærður fyrir nauðgun, að hafna beri framlagningu vottorðs sálfræðings í málinu. Hæstiréttur staðfesti þar með úrskurð Héraðsdóms Norðurlands vestra um að sálfræðingurinn verði leiddur sem vitni í málinu.
Er maðurinn ákærður fyrir brot á 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Þar segir að það teljist nauðgun „að notfæra sér geðsjúkdóm eða aðra andlega fötlun manns til þess að hafa við hann samræði eða önnur kynferðismök, eða þannig er ástatt um hann að öðru leyti að hann getur ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans.“
Málinu var skotið til Hæstaréttar með kæru 19. maí sl. Var úrskurður Héraðsdóms Norðurlands vestra frá 17. maí kærður, þar sem fallist var á kröfu ákæruvaldsins um að lagt yrði fram vottorð sálfræðings frá 13. maí og hún jafnframt leidd fyrir dóminn sem vitni. Sálfræðingurinn átti viðtöl við brotaþola eftir að meint brot ákærða áttu sér stað.
Verjandi krafðist þess að hinn kærði úrskurður yrði felldur úr gildi og honum breytt á þann hátt að kröfu ákæruvaldsins um leggja fram áðurnefnt vottorð og kröfu um að sálfræðingurinn verði leidd fyrir héraðsdóm sem vitni í málinu yrði hafnað.
Verjandi taldi skjalið of seint fram komið og því hafi honum ekki gefist tími til að kynna sér efni þess. Þá taldi verjandi skjalið vera dulbúna matsgerð sem einhliða hafi verið aflað án aðkomu ákærða, en ekki læknisvottorð, að því er segir í úrskurði héraðsdóms.
Þar segir ennfremur að Hæstiréttur Íslands hafi ítrekað í dómum sínum í sakamálum vísað til vottorða af því tagi sem hér um ræði. Telja verði að vottorðið og vætti þess sem það ritaði geti mögulega varpað ljósi á líðan brotaþola eftir hinn meinta atburð.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. maí 2012, Innlent Sýknaður af nauðgunarákæru
- Miðvikudagur, 28. mars 2012, Innlent Fordæmalaus málsmeðferð
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent Dóttirin gefur ekki skýrslu aftur
- Fimmtudagur, 10. maí 2012, Innlent Fer í gegnum þriðju aðalmeðferðina
- Fimmtudagur, 7. apríl 2011, Innlent Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































